Sporthúsið
Sporthúsið

Aðsent

Óvissa í fjármögnun göngustíga
Fimmtudagur 5. febrúar 2026 kl. 06:41

Óvissa í fjármögnun göngustíga

Í grein oddvita Samfylkingarinnar og formans bæjarráðs í Suðurnesjabæ Sigursveins Bjarna Jónssonar  sem birtist hér í Víkurfréttum er greint frá því að í vor hefjist tímamótaverkefni þegar lagðir verði göngu- og hjólreiðastígar frá Suðurnesjabæ til Reykjanesbæjar, frá Garði og Sandgerði. Sem yrði mikil samgöngubót fyrir sveitarfélagið. En það vakna upp spurningar þegar horft er til þeirra upplýsinga sem liggja fyrir varðandi fjármögnun verkefnisins.

Frá Vegagerðinni berast þau svör til okkar að reiknað er með að Vegagerðin greiði 50% af þessum hjólastígaframkvæmdum, en framkvæmdin er á ábyrgð sveitarfélagsins.

Samkvæmt tillögu að samgönguáætlun 2026–2030, sem nú er til umfjöllunar á Alþingi, eru engar fjármagnaðar framkvæmdir vegna hjólastíga milli Garðs, Sandgerðis og Reykjanesbæjar á árinu 2026. Það eina sem gert er ráð fyrir er 5 milljóna króna framlag til að standa undir helmingi hönnunarkostnaðar.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Vegagerðin hefur jafnframt staðfest í svörum til okkar:

  • hún hafi ekki fengið upplýsingar um heildarkostnað verkefnisins og geti því ekki komið því inn í áætlun ársins með svo stuttum fyrirvara,
  • framkvæmdin sé á ábyrgð sveitarfélagsins,
  • og að Vegagerðin hafi tekið frá 30 milljónir króna á ári á árunum 2027–2030, en telur að það fjármagn dugi skammt fyrir jafn umfangsmiklar framkvæmdir.

Í fjárhagsáætlun meirihlutans í Suðurnesjabæ fyrir árin 2026 til 2029 er einungis gert ráð fyrir 70 milljónum króna í göngustíga frá þéttbýli Garðs og 90 milljónum króna frá þéttbýli Sandgerðis á tímabilinu. Það liggur því fyrir að það fjármagn sem áætlað er í þessi verkefni dugar skammt í þessar miklu hjólastígaframkvæmdir.

Hér er því um að ræða ófullmótaða hugmynd, án tryggðrar fjármögnunar, en í tímasettri framkvæmdaráætlun meirihlutans eiga báðir stígar að vera tilbúnir mánaðarmótin júlí – Ágúst 2026 en ekki liggur fyrir raunhæft kostnaðarmat.

Það er sjálfsagt að styðja við uppbyggingu öruggra og vistvænna samgangna. En slíkt krefst hins vegar skýrrar og heiðarlegrar upplýsingagjafar. Íbúar Suðurnesjabæjar eiga rétt á að vita hvort verið sé að boða raunverulegar framkvæmdir eða hvort um sé að ræða hugmyndir og vonir sem eru kynntar sem staðreyndir.

Ef meirihluti Samfylkingar, Bæjarlista og Sjálfstæðisflokks telur þetta vera tímamótaverkefni hlýtur hann að leggja fram skýra og raunhæfa fjármögnunaráætlun. Þar sem slíkt liggur ekki fyrir eins og staðan er í dag, því er full ástæða til að stíga varlega til jarðar og gera íbúum grein fyrir stöðunni eins og hún er í raun.

Anton K. Guðmundsson - Oddviti Framsóknarflokksins í Suðurnesjabæ

Magnús Sigfús Magnússon – Bæjarfulltrúi í Suðurnesjabæ