Grindavík kaupir almannatengslaráðgjöf fyrir 640 þúsund krónur á mánuði
Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt að gera samning um ráðgjöf við almannatengsl við Fjalari Sigurðarson, samkvæmt tilboði sem hljóðar upp á 640.000 krónur á mánuði.
Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Grindavíkur 6. janúar 2026. Í afgreiðslu bæjarráðs kemur fram að samningurinn verði til loka núverandi kjörtímabils.





