Pizzan- skipta í hinn 28. jan
Pizzan- skipta í hinn 28. jan

Aðsent

Nýjar áherslur með nýrri kynsló
Mánudagur 2. febrúar 2026 kl. 10:41

Nýjar áherslur með nýrri kynsló

„Ég verð að segja að það mætti alveg opna gluggana hjá bæjarstjórninni hér í Reykjanesbæ og fá inn ferskara loft. Fá annað sjónarhorn á hlutina í bland við eldri hugmyndir.“ 

Þetta hafði íbúi í Reykjanesbæ að segja um bæjarpólitíkina við mig um daginn.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Þessi orð ná að mínu mati utan um þá tilfinningu sem margir deila en eru jafnframt sammála um að Reykjanesbær standi á góðum grunni, en að það mætti hleypa nýrri kynslóð að sem kæmi með ferskan blæ. Ekki vegna þess að allt sé í rugli, heldur vegna þess að nýjar áherslur í bland við reynslu geta gert okkur enn sterkari. 

Það er gott að staldra við og hugsa hlutina upp á nýtt. Hvað megi betur fara og hvar gengur vel. Undanfarin ár hefur margt gott verið gert í Reykjanesbæ. Uppbygging hefur verið mikil, þjónusta styrkst og bærinn tekið miklum breytingum. Okkur ber að virða það og viðurkenna, þrátt fyrir að vera jafnvel ósammála um útfærslurnar. En nú er kominn tími á ferskan blæ, nýja nálgun og breytingar með nýju fólki. Við megum ekki festast í gömlu fari. Þegar fleiri sjónarhorn fá að heyrast verða ákvarðanir upplýstari og traust milli íbúa og stjórnvalda eykst. Það er sú stjórnsýsla sem er best til þess fallin að leiða okkur áfram inn í framtíðina. 

Viðreisn er nú að fara af stað í Reykjanesbæ og ætlar sér að bjóða upp á akkúrat þetta, nýtt upphaf með nýrri kynslóð. Í grasrótinni er fólk með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu sem er að stíga sín fyrstu skref í stjórnmálum í bland við reynslubolta. Þessi blanda er styrkur og lykillinn að skýrri framtíðarsýn fyrir Reykjanesbæ. 

Ég vil því hvetja alla sem áhuga hafa á að taka þátt í þessari vegferð með okkur að setja sig í samband við uppstillingarnefnd Viðreisnar í Reykjanesbæ.  Hægt er að heyra í þeim með því að senda póst á netfangið [email protected]. Við viljum fá að borðinu fólk með ólíkan bakgrunn, reynslu og þekkingu og byggja þannig upp sterka liðsheild og erum sannfærð um að þannig fáum við heilsteyptan hóp með almannahagsmuni framar sérhagsmunum í Bæjarstjórn Reykjanesbæjar. 

Loftum út og ryðjum þannig veginn fyrir nýja kynslóð til áhrifa. 

Arnar Páll Guðmundsson

formaður Viðreisnar á Suðurnesjum