Akademíureit skipt upp í reiti og boðinn út í áföngum
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt næstu skref í verkefninu „Akademíureitur“ og ákveðið að fara svokallaða leið tvö, sem felur í sér að skipta svæðinu upp í reiti og bjóða út hvern reit fyrir sig.
Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs 15. janúar 2026, þar sem lagt var fram minnisblað starfshóps um framhaldið. Á fundinn mættu Erla Bjarný Gunnarsdóttir, lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs, og Gunnar Kristinn Ottósson, skipulagsfulltrúi, sem kynntu málið.
Í afgreiðslu bæjarráðs kemur fram að tillögur starfshópsins um næstu skref hafi verið samþykktar og að ákveðið hafi verið að vinna áfram eftir leið tvö. Þá felur bæjarráð Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur og Gunnari Kristni Ottóssyni að vinna áfram í málinu.





