Sporthúsið
Sporthúsið

Aðsent

Með bók í hönd á degi leikskólans
Föstudagur 6. febrúar 2026 kl. 10:13

Með bók í hönd á degi leikskólans

Barnabækur eru gullnáma orðaforða, flókinnar málnotkunar og nýrrar þekkingar

Innihaldsríkar sögustundir eru gulls ígildi þegar kemur að því að efla mál og læsisþroska leikskólabarna. Samspil margra þroskaþátta styrkist við það að hlusta á vandaðar og vel lesnar sögur þar sem góður tími er gefinn til samræðna. Tilfinninga- og félagsþroski eflist þegar börnin setja sig í spor sögupersóna og upplifa með þeim gleði og sorgir. Þau auka jafnframt við þekkingu sína á lífinu og tilverunni um leið og þau hlusta á fjölskrúðugan orðaforða.

Hvers vegna er lestur fyrir og með börnum svona gagnlegur?

Í barnabókum úir og grúir af áhugaverðum og spennandi orðum sem gott og gagnlegt er að kunna, en ritað mál er að öllu jöfnu mun blæbrigðaríkara en talað mál og þar koma fyrir margvísleg og sjaldgæf orð. Barnabækur eru farartæki inn í heim hins óþekkta og gefa kennurum, foreldrum og öðrum uppalendum ómetanleg tækifæri til að efla mál-, vitsmuna, félags- og tilfinningaþroska barna. Ótal rannsóknir í menntunarfræðum síðustu áratuga sýna sterk tengsl á milli málþroska, sérstaklega orðaforða, og lesskilnings barna þegar lengra líður á skólagönguna. Góður málþroski á leikskólaárunum er þar af leiðandi mjög mikilvægur fyrir læsisþroska barna og velgengni á næstu skólastigum. (Árdís H. Jónsdóttir, Ingibjörg Sif Stefánsdóttir og Hrafnhildur Ragnarsdóttir, 2025).

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Sögu- og samverustundir

Í leikskólum Reykjanesbæjar er rík áhersla lögð á að efla mál- og læsisþroska barnanna með fjölbreyttum leiðum. Sögu- og samverustundir skipa þar stóran sess og byggja á langri og góðri hefð þar sem íslenskt mál svífur yfir og allt um kring. Í þeim stundum sem og í öðru skólastarfi skiptir fagmennska, þekking á málþroska ungra barna og áhugi kennara öllu máli.

Sá tími sem gefinn er til sögulesturs og samræðna með börnum í leikskólum og á heimilum þeirra eru töfrastundir sem aldrei verða frá þeim teknar.

Til hamingju með dag leikskólans.

Heimildir:
Árdís Hrönn Jónsdóttir, Hrafnhildur Ragnarsdóttir og Ingibjörg Sif Stefánsdóttir. (2025).
Orðaspjall. Árdís H. Jónsdóttir


Bók í hönd

Bók í hönd
og þér halda engin bönd.
Bók í hönd
og þú berst niður á strönd.
Bók í hönd
og þú breytist í önd.
Bók í hönd
og beint út í lönd.
Þórarinn Eldjárn

Árdís Hrönn og Inga Sif,
skólastjórnendur í leikskólanum Tjarnar