ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Fréttir

Íbúum Grindavíkur tekið að fjölga á ný
Grindvíkingum er nú að fjölga aftur í fyrsta sinn frá rýmingu. Mynd: Golli
Föstudagur 6. febrúar 2026 kl. 10:32

Íbúum Grindavíkur tekið að fjölga á ný

Íbúum Grindavíkur er tekið að fjölga á ný eftir að hafa fækkað mikið frá rýmingu í nóvember 2023. Þjóðskrá gefur mánaðarlega út tölur um íbúa eftir sveitarfélögum. Tölur síðasta árs miðast við 1. desember. Þá voru íbúar Grindavíkur 892 talsins. Í tölum sem birtar voru í morgun voru íbúar Grindavíkur orðnir 894 og hefur því fjölgað um tvo eða 0,2%.

Íbúar Suðurnesja voru 31.887 þann 1. febrúar. Það er fjölgun um 0,1%. Það vekur athygli í tölunum að íbúum Reykjanesbæjar heldur áfram að fækka. Þeim hefur fækkað um sextán frá því 1. desember síðastliðinn. Þeir eru nú 24.619 talsins.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Í Suðurnesjabæ búa 4.393 og fjölgaði um tíu á tímabilinu frá 1. desember 2025.

Mesta breytingin á tímabilinu er í Sveitarfélaginu Vogum. Þar hefur fjölgað um 25 manns frá 1. desember eða 1,3%.