Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Svíþjóð sinnir loftrýmisgæslu á Íslandi í fyrsta sinn
Föstudagur 6. febrúar 2026 kl. 07:47

Svíþjóð sinnir loftrýmisgæslu á Íslandi í fyrsta sinn

Flugsveit sænska flughersins kom til landsins í byrjun febrúar, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Flugsveitin samanstendur af sex JAS Gripen orrustuþotum og um 110 liðsmönnum, en um er að ræða fyrstu loftrýmisgæslu Svíþjóðar á Íslandi.

„Ég fagna komu sænsku flugsveitarinnar hingað til lands sérstaklega, en þáttaka þessarar miklu vinaþjóðar okkar í þessu mikilvæga verkefni sýnir með áþreifanlegum hætti hvernig aðild Svía að Atlantshafsbandalaginu styrkir og dýpkar varnarsamvinnu okkar og eflir um leið varnir landsins," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Flugsveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlangshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands, auk þess sem danski flugherinn hefur viðveru hér á landi í tengslum við æfinguna Noble Defender.

Varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði utanríkisráðuneytisins, í samstarfi við Isavia.

Með fyrirvara um veður er gert ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum í fyrstu viku febrúarmánaðar. Ráðgert er að loftrýmisgæslu sænska flughersins ljúki á Íslandi í mars.

Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki um miðjan mars.