„Hvatagreiðslur“ verða að Frístundastyrk í Reykjanesbæ
Lýðheilsuráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að hætta notkun heitisins „hvatagreiðslur“ yfir styrki til eldri borgara, barna og ungmenna til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi og taka upp nýtt heiti: Frístundastyrkur Reykjanesbæjar.
Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, kynnti málið á fundi ráðsins og sagði frá vinnu við breytinguna. Markmiðið er að samræma orðnotkun við það sem algengast er hjá sveitarfélögum á landinu, þar sem heitið „Frístundastyrkur“ er víða notað.
Fram kom að markaðssetning á nýja heitinu sé þegar hafin í samstarfi við Kristrúnu Björgvinsdóttur, markaðs- og kynningarfulltrúa Reykjanesbæjar.




