Svona var rauða gjörningaveðrið fyrir einu ári
Í dag er eitt ár frá því rauð veðurviðvörun var gefin út fyrir nær allt landið. Veðurspá með viðvöruninni fyrir Faxaflóa gerði ráð fyrir sunnan roki eða ofsaveðri. Rigning, talverð um tíma. Foktjón líklegt og útlit fyrir vatnavexti og raskanir á samgöngum.
Þetta gekk allt eftir. Talsvert tjón varð á Ásbrú þar sem þak fauk af fjölbýlishúsi og þakplötur fuku í átt að flugvallarsvæðinu. Þegar leið á daginn gerði mikið eldingaveður og björgunarsveitarfólk stóð í ströngu við að hefta fok á plötum og lausamunum.
Hér að neðan er tengill á stutt myndskeið frá deginum, þar sem veðrið er á allt öðrum nótum en við höfum fengið að kynnast síðustu daga og vikur.





