Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Æfðu við krefjandi aðstæður á Kleifarvatni
Frá æfingunni. Mynd: Landhelgisgæslan
Fimmtudagur 5. febrúar 2026 kl. 07:43

Æfðu við krefjandi aðstæður á Kleifarvatni

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar æfði fyrir skömmu við krefjandi aðstæður á Kleifarvatni þar sem dúkku var slakað niður á milli klaka og var hlutverk sigmannsins að koma dúkkunni aftur upp í þyrluna með björgunarlykkju.

Verkefnið reyndi á samvinnu og skipulag áhafnarinnar enda varð að komast að dúkkunni á milli klakanna sem voru nokkur hundruð kíló hver og sumir hverjir ansi þykkir.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Á vef Landhelgisgæslunnar segir að æfingin hafi gengið vel og dúkkunni var örugglega bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.