Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Magn kviku undir Svartsengi nálgast hámark
Miðvikudagur 4. febrúar 2026 kl. 14:26

Magn kviku undir Svartsengi nálgast hámark

Kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram að aukast hægt en stöðugt og hafa samkvæmt nýjustu líkanreikningum tæplega 21 milljón rúmmetrar af kviku safnast þar fyrir frá síðasta eldgosi í júlí. Mest hefur magn kviku undir Svartsengi mælst 22,6 milljónir rúmmetra. Þetta kemur fram í uppfærðri stöðuskýrslu þar sem fram kemur að hættumat Veðurstofunnar sé óbreytt og gildi þess framlengt til 3. mars.

Veðurstofan segir líklegustu sviðsmyndina næstu vikur vera kvikuhlaup frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem geti endað með eldgosi. Ef til goss kemur er talið líklegast að það yrði sambærilegt þeim gosum sem þegar hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni á þessu umbrotatímabili.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Lítil skjálftavirkni við Svartsengi

Á Reykjanesskaga mælist áfram lítil skjálftavirkni við Svartsengi. Hins vegar varð skjálftahrina við Lambafell í Þrengslum 28. janúar, þar sem mældust tæplega 200 skjálftar. Samtals hafa rúmlega 260 skjálftar mælst á svæðinu síðustu viku og stærsti skjálftinn var um M3. Veðurstofan metur að um sé að ræða hefðbundna skjálftavirkni á svæðinu og minnir á að síðast hafi hrina orðið þar í júlí 2024.

Engin merki um landris annars staðar á skaganum

Ný gervitunglamynd (InSAR) sem spannar tímabilið 9. ágúst 2025 til 30. janúar 2026 sýnir að landris mælist ekki annars staðar á Reykjanesskaganum en við Svartsengi. Slíkar myndir eru notaðar til að greina smávægilegar breytingar á yfirborði með samanburði mynda sem teknar eru á mismunandi tímum.

Hættumat framlengt til 3. mars

Hættumat Veðurstofunnar er, að óbreyttu, áfram í gildi en hefur verið framlengt til 3. mars. Veðurstofan segir að áfram verði fylgst náið með þróuninni og hættumat uppfært ef breytingar verða á virkninni.