Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Sprengingar í Sandgerði á föstudag
Þriðjudagur 3. febrúar 2026 kl. 11:38

Sprengingar í Sandgerði á föstudag

— vegna framkvæmda við drenþró á Lækjamótum

Föstudaginn 6. febrúar og síðan aftur um miðja næstu viku eru fyrirhugaðar léttar sprengingar á klöpp á opnu svæði sunnan við Lækjamót í Sandgerði. Framkvæmdin er í tengslum við gerð drenþróar sem tekur við yfirborðsvatni á svæðinu og er hluti af umbótum á fráveitu og yfirborðsvatnslausnum á Lækjamótum.

Við sprengingarnar verða gefin þrjú stutt hljóðmerki til viðvörunar áður en skoti er hleypt af. Íbúar í næsta nágrenni hafa fengið sérstaka tilkynningu vegna framkvæmdanna.

Sprengivinnan verður framkvæmd af viðurkenndum sprengistjóra og í samræmi við gildandi öryggis- og verklagsreglur. Leitast verður við að halda ónæði í lágmarki á meðan framkvæmdum stendur.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Íbúar eru beðnir um að sýna framkvæmdunum tillitssemi meðan á þeim stendur, segir í tilkynningu frá Suðurnesjabæ.