Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Samfylking og Sjálfstæðismenn stærst í Suðurkjördæmi
Samfylkingin er stærsti flokurinn í Suðurkjördæmi í nýjustu skoðanakönnuninni.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 3. febrúar 2026 kl. 15:57

Samfylking og Sjálfstæðismenn stærst í Suðurkjördæmi

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn mælast stærst í nýjustu skoðanakönnun og Miðflokkkurinn kemur skammt á eftir í nýjustu skoðanakönnun Gallup og RÚV á fylgi flokkanna í Suðurkjördæmi. 

Samfylking mælist stærst, með 26,4% í nýjustu könnuninni og fengi samkvæmt því 3 þingmenn, en kannanir eru gerðar mánaðarlega.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Sjálfstæðisflokkurinn er með 24,1% og fengi líka þrjá þingmenn.

Miðflokkurinn fær 22,6% og fengi tvo þingmenn.

Viðreisn réttir aðeins úr kútnum frá síðustu könnun og mælist með 7,7% og fengi einn þingmann.

Framsókn dalar aftur og fær 7,5% og engan þingmann. Flokkur fólksins mælist með 6,7% og fær heldur ekki þingmann frekar en önnur framboð sem mælast með 2% eða minna.