Slysavarnafélagið Landsbjörg í samstarf með Öldunni
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur undirritað samstarfssamning við nýsköpunarfyrirtækið Öldu Öryggi um innleiðingu á öryggisstjórnunarkerfi Öldunnar um borð í björgunarskipum og bátum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Samhliða verður unnið sameiginlega að áframhaldandi þróun kerfisins.
Í tilkynningu segir að Landsbjörg sé afar ánægt með samstarfið, enda byggi það á frumkvöðlalausnum og hugmyndum sem kviknuðu um borð í Sæbjörgu, skólaskipi Slysvarnaskóla sjómanna.
Njarðvíkingurinn Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Öldu, segir félagið „gríðarlega stolt og þakklátt“ fyrir traustið sem Slysavarnafélagið Landsbjörg sýni með því að innleiða kerfið um borð í öll skip og báta félagsins. Hann bendir jafnframt á að samstarf við Slysavarnaskóla sjómanna hafi verið lykilþáttur í þróun Öldunnar og að það hafi skilað „tímamótaárangri“ í nútímavæðingu öryggisstjórnunar til sjós.
Markmið samstarfsins er að efla áfram öryggi sjómanna og tryggja að Íslendingar verði áfram leiðandi á því sviði. Þá á að færa öryggisstjórnun, þjálfun og yfirsýn yfir stöðu áhafna björgunarskipa og báta Slysavarnafélagsins Landsbjargar inn í nútímalegt, stafrænt kerfi.
Í tilkynningunni kemur fram að samstarfið falli einnig vel að áformum Slysavarnafélagsins Landsbjargar um að taka yfir réttindakennslu áhafnameðlima í samræmi við nýlega lagabreytingu Alþingis.
Öryggisstjórnunarkerfi Öldunnar er nú þegar í notkun hjá stórum hluta íslenska fiskiskipaflotans og segir Slysavarnafélagið Landsbjörg mikilvægt að taka virkan þátt í áframhaldandi þróun þess. „Þar með tryggjum við betur öryggi eigin áhafna en ekki síður öryggi íslenskra sjómanna, nokkuð sem félagið hefur látið sig varða í nánast heila öld,“ segir Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar.




