Slasaður sjómaður sóttur 170 sjómílur vestur af Garðskaga
Skipstjóri erlends fiskiskips hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gær og óskaði eftir aðstoð vegna slyss sem varð þegar vír slitnaði og hafnaði í brjóstkassa eins í áhöfn skipsins.
Skipið var þá statt um 450 sjómílur vestur af Reykjavík, töluvert fyrir utan íslenska efnahagslögsögu. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar höfðu samband við kollega sína í björgunarmiðstöðinni í Nuuk en í ljós kom að engin björgunarþyrla var til taks á austurströnd Grænlands.
Skipstjórinn var því beðinn um að sigla í átt að Íslandi og inn í íslenska efnahagslögsögu. Þegar þangað var komið var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út, sem og áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, eins og alltaf er gert þegar annast þarf útkall svo langt á hafi úti.
Á fimmta tímanum í dag kom áhöfn flugvélarinnar að skipinu og fór yfir móttöku þyrlu með skipstjóra og gaf leiðbeiningar fyrir flutning þess slasaða um borð í þyrluna. Laust fyrir klukkan fimm kom áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar á staðinn og hóf hífingar um 170 sjómílur vestur af Garðskaga sem gengu vel.
Að því búnu var flogið með þann slasaða til Reykjavíkur en þyrlusveitin lenti á Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum. Þar beið sjúkrabíll og flutti þann slasaða á Landspítalann.





