MSS fær á sjöttu milljón króna í íslenskukennslu ungs fólks af erlendum uppruna
Mennta- og barnamálaráðherra úthlutaði nýlega styrkjum til að efla samstarf og nýsköpun á vettvangi íslenskunnar sem annars tungumáls. Tæplega 200 milljónum var úthlutað til 17 aðila til að styðja við nýjungar í íslenskunámi innflytjenda og ná til fjölbreyttari hópa með nýju námi, aðferðum eða verkfærum sem gera á aðgengileg öllum. Þar á meðal var Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Verkefnið „Grunnspor- leið að námi og samfélagsþátttöku ungs fólks af erlendum uppruna“ á vegum Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum fékk úthlutað 5,4 milljónum króna til verkefnisins.
Úthlutunin byggir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að innflytjendur fái tækifæri til að læra íslensku og taka virkan þátt í samfélaginu. Hún byggir jafnframt á menntastefnu 2030 og á þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024-2026.
Leitað var til m.a. þeirra sem starfa beint með innflytjendum eftir nýjum hugmyndum sem vinna ætti í samstarfi ólíkra aðila og miðla áfram sem víðast. Öflugt samstarf var því eitt af þeim skilyrðum sem varð að uppfylla til að fá styrk og því verða nú til ný samstarfsnet sem efla íslenskuna þvert á skólastig, sveitarfélög, stofnanir og aðila vinnumarkaðarins.
Styrkirnir voru auglýstir lausir til umsóknar á vef ráðuneytisins í agúst þar sem tilgreind voru skilyrði og áherslusvið. Tengja þurfti samstarfsverkefnin við a.m.k. einn meginmarkhóp innflytjenda þar sem talin er sérstök þörf á nýjum nálgunum. Alls barst 51 umsókn. Ákveðið var að styrkja 17 umsóknir sem allar fólu í sér áhugavert samstarf og fróðlegar nýjungar sem ættu að geta farið í almenna dreifingu.





