ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Fréttir

Halldóra leiðir áfram Framsókn - góð þátttaka í prófkjöri
Þátttakendur í prófkjöri Framsóknar í Reykjanesbæ 2026.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 7. febrúar 2026 kl. 18:59

Halldóra leiðir áfram Framsókn - góð þátttaka í prófkjöri

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir verður áfram oddviti Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ en hún varð efst í prófkjöri sem flokkurinn hélt í dag. Mjög góð þátttaka var, 876 kusu eða 63,48%.

Halldóra, sem hefur verið formaður bæjarráðs á kjörtímabilinu var ein sem bauð sig í efsta sætið. Hún hlaut 519 atkvæði.

Róbert Jóhann Guðmundsson hlaut flest atkvæði í efstu tvö sætin eða 268 en hann var í 4. sæti flokksins fyrir síðustu kosningar.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Í þriðja sæti með 337 atkvæði í 1.-3. sæti varð Díana Hilmarsdóttir en hún var í því sæti fyrir síðustu kosningar.

Í fjórða sæti með 396 atkvæði í 1.-4. sæti varð Birgir Már Bragason en hann gekk yfir til Framsóknar úr Beinni leið nýlega þar sem hann var á lista fyrir síðustu kosningar.

Framsókn hefur verið í meirihluta bæjarstjórnar með Samfylkingu og Beinni leið á núverandikjörtímabili.