Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Fréttir

Reykjanesbær fær nýjan götusóp
Götusópurinn framan við umhverfismiðstöð bæjarins ásamt nokkrum starfsmönnum Reykjanesbæjar. Mynd af vef bæjarins.
Laugardagur 7. febrúar 2026 kl. 09:00

Reykjanesbær fær nýjan götusóp

Umhverfis- og framkvæmdasvið Reykjanesbæjar tók í vikunni við nýjum götusóp sem nú verður nýttur til götusópunar í bænum. Með tilkomu hins nýja sóps eykst sjálfstæði bæjarins í þjónustu við íbúa og bætast verulega möguleikar til að bregðast hratt og markvisst við aðstæðum, segir í færslu á vef bæjarins.

Til þessa hefur Reykjanesbær reitt sig á þjónustu verktaka við götusópun. Sú skipan hefur hins vegar þýtt að sveitarfélagið hafði takmarkaða möguleika á að ráða því hvenær götur voru sópaðar. Með nýjum götusóp í eigu bæjarins verður nú hægt að skipuleggja götusópun eftir raunverulegri þörf hverju sinni.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Veturinn í ár hefur einkennst af tíðri hálku, sandburði og breytilegum veðurskilyrðum og því er brýn þörf á reglulegri götusópun til að bæta umhverfi, loftgæði og öryggi vegfarenda. Nú þegar tækið er komið í notkun er stefnt að því að hefja skipulagða götusópun á næstu dögum, eftir því sem veður og aðstæður leyfa.