ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Fréttir

112 dagurinn haldinn hátíðlegur á Suðurnesjum 11. febrúar
Laugardagur 7. febrúar 2026 kl. 09:49

112 dagurinn haldinn hátíðlegur á Suðurnesjum 11. febrúar

Þann 11.2 næstkomandi er 112 dagurinn og lögreglan á Suðurnesjum ætlar að taka þátt í þeim degi ásamt viðbragðsaðilum í umdæminu, segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Nú er verið að skipuleggja dagskrána og stefnir í góðan dag.

Kl. 07:50-08:30 munu neyðartæki lögreglu, slökkviliðs sem og björgunarsveita vera við flesta grunn- og leikskóla á Suðurnesjum og munu viðbragðsaðilar vera áberandi þennan morguninn til að vekja athygli á deginum.

Kl. 16.00-17.00 verður húsnæði lögreglunnar á Suðurnesjum á Hringbraut opið í almenningi og gefst gestum tækifæri á að skoða tól og tæki lögreglu (að öllu óbreyttu)

Kl. 16.00-18.00 verður húsnæði Brunavarna Suðurnesja opið almenningi og gefst gestum að skoða tól og tæki slökkviliðs en þar verða einnig neyðarverðir frá Neyðarlínunni ásamt fulltrúum frá Rauði krossinum og Slysavarnarfélaginu Landsbjörg ásamt slökkviliðsmönnum og lögreglumönnum.

Kl. 17:15 verða verðlaun veitt fyrir flottustu myndirnar í litasamkeppni yngstu stiga í grunnskólum í umdæminu og RKÍ veitir einnig viðurkenningar.

Aðgerðarstjórnsstöðin sem er staðsett í húsnæði Brunavarna Suðurnesja, AST verður opin og tll sýnis og starfsmaður Almannavarnardeildar verður á staðnum og kynnir starfsemi þar.

Lögreglan hvetur áhugasama að koma og minnir jafnframt á að viðbragðsaðilar verða áberandi við vonandi alla skóla í umdæminu þennan morgunin.
Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk