Breytingar á hollvinasamningum Þórkötlu og gistiviðauki framlengdur
Þórkatla hefur gert breytingar á hollvinasamningum félagsins í Grindavík og framlengt gildistíma gistiviðauka.
Hollvinasamningar, sem áður voru tímabundnir til 12 mánaða, eru nú orðnir ótímabundnir með eins mánaða uppsagnarfresti fyrir báða aðila. Eldri samningar eru framlengdir einhliða og teljast nú ótímabundnir á sama grundvelli.
Jafnframt hefur Þórkatla ákveðið að framlengja gildistíma gistiviðauka við hollvinasamninga til 31. ágúst 2026. Gistiviðaukinn hefur verið í gildi sem tilraunaverkefni frá maí 2025 og hefur aukið viðveru Grindvíkinga í bænum.
Nánari upplýsingar um breytingarnar má finna á vef Þórkötlu.






