112 dagurinn 2026: 30 ára afmæli Neyðarlínunnar
Á morgun, miðvikudaginn 11. febrúar, verður 112 dagurinn haldinn hátíðlega víða um land. Markmið dagsins er að minna á þetta mikilvæga neyðarnúmer ásamt því að þakka neyðarvörðum og öðrum viðbragðsaðilum fyrir þeirra ómetanlegu störf. Dagsetningin 11.2. er táknræn og hjálpar landsmönnum að muna þetta lífsnauðsynlega númer.
Þema 112 dagsins árið 2025 er 30 ára afmæli Neyðarlínunnar. Neyðarverðir taka á móti öllum erindum sem berast 1-1-2 og vinna úr þeim. Þau veita stuðning og leiðbeiningar og sjá til þess að málin fari í réttan farveg.
Til þess að samstarf innhringjanda og neyðarvarðar gangi sem farsællegast er gagnlegt að vera viðbúinn að svara eftirfarandi spurningum þegar hringt er í 1-1-2.
- Hvar er atburðurinn?
- Hver ert þú?
- Hvað gerðist?
- Hvenær gerðist atburðurinn?
Viðburðir á Suðurnesjum
Reykjanesbær
- Hátíðarhöld í Reyjanesbæ verða miðvikudaginn 11. febrúar.
Kl. 07:50-08:30 munu neyðartæki lögreglu, slökkviliðs sem og björgunarsveita vera við flesta grunn- og leikskóla í umdæminu og munu viðbragðsaðilar vera áberandi þennan morguninn til að vekja athygli á deginum. - Kl. 16.00-17.00 Húsnæði lögreglunnar á Suðurnesjum opið í almenningi og gefst gestum að skoða tól og tæki lögreglu.
- Kl. 16.00-18.00 Húsnæði Brunavarna Suðurnesja opið almenningi og gefst gestum að skoða tól og tæki slökkviliðs.
- Neyðarverðir frá Neyðarlínunni verða á staðnum ásamt fulltrúum frá Rauði krossinum og Slysavarnarfélaginu Landsbjörg ásamt slökkviliðsmönnum og lögreglumönnum.
- Kl. 17:30 Verðlaun veitt fyrir flottustu myndirnar í litasamkeppni yngstu stiga í grunnskólum í umdæminu og RKÍ veitir einnig viðurkenningar.
- Hátíðarhöld í Reyjanesbæ verða miðvikudaginn 11. febrúar.





