Tæplega 300 útköll á sjúkrabíla í janúar á Suðurnesjum
Nóg var um að vera hjá Brunavörnum Suðurnesja í janúar, fyrsta mánuði ársins. Samkvæmt tölfræði sem Brunavarnir Suðurnesja birtu voru alls 296 boðanir á sjúkrabíla í mánuðinum, þar af 83 forgangsflutningar.
Einnig var 46 sinnum boðað á slökkvilið í janúar og af þeim voru 19 útköll skilgreind sem forgangsútköll.





