Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Aðsent

Fræðsla og kraftmikið forvarnastarf í skólunum okkar
Fimmtudagur 12. febrúar 2026 kl. 08:05

Fræðsla og kraftmikið forvarnastarf í skólunum okkar

Vika6 2026 – Öryggi og ofbeldi

Vika6 var haldinn í grunnskólum Reykjanesbæjar í fjórða sinn dagana 2. - 6. febrúar. Í kring um sjöttu viku hvers árs hefur skapast hefð fyrir því að setja fræðslu um kynheilbrigði og kynbundið ofbeldi í forgrunn.

Vika6 árið 2026 tókst vonum framar og skilur eftir sig gott veganesti fyrir nemendur, starfsfólk og foreldra. Þema vikunnar að þessu sinni var „Öryggi og ofbeldi“, en efnisvalið var samvinnuverkefni skólasamfélagsins. Það var einstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir tóku þátt í að móta vikuna strax frá upphafi, en þemað var ákvarðað eftir könnun sem send var á bæði nemendur og foreldra. Niðurstöðurnar voru afgerandi og bárust yfir 1000 svör sem sýndu glöggt að málefni tengd öryggi, mörkum og forvörnum gegn ofbeldi brenna á samfélaginu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Skipulagning vikunnar var í höndum tengiliða forvarnarteyma skólanna, en þeir nutu aðstoðar sérstaks vinnuhóps. Í þeim hópi sátu fulltrúar nemenda úr öllum skólum ásamt tengiliðum forvarnarteyma, sem tryggði að dagskráin væri bæði viðeigandi og áhugaverð fyrir unga fólkið okkar. Þessi nálgun, þar sem raddir nemenda fengu að njóta sín við útfærsluna, skilaði sér í fræðsluna.

Dagskráin var fjölbreytt og sniðin að mismunandi aldurshópum. Á unglingastigi var vikan skipulögð tímum þar sem kafað var djúpt í erfið en mikilvæg málefni. Á mið- og yngsta stigi var lögð áhersla á að lágmarki þrjá skipulagða tíma af aldursmiðaðri kennslu þar sem rætt var um samskipti, vináttu og persónuleg mörk á uppbyggilegan hátt.

Einn af hápunktum vikunnar var fræðsla um kynheilbrigði og rétta notkun smokka. Verkefnið naut góðs af dýrmætum stuðningi Reykjanesapóteks, sem gaf smokka í fræðsluskyni, og Skólamatar, sem lagði til banana sem notaðir voru til að sýna rétta notkun á smokkum. Þessi stuðningur gerði okkur kleift að nálgast fræðsluna á raunsæjan og fordómalausan hátt, sem nemendur kunnu vel að meta.


Guðbjörg Jóhannesdóttir afhendir smokka frá Reykjanesapóteki.

Sköpunarkraftur nemenda fékk líka að blómstra þar sem þeim gafst kostur á að vinna eigið fræðsluefni fyrir samnemendur sína. Haldin var samkeppni á milli skóla og var útkoman vægast sagt glæsileg. Fjölmörg vönduð og hvetjandi verkefni litu dagsins ljós, en að lokum voru það Alexandra Ellen, Katla Dröfn, Ólöf Hlín, Sólrún Líf og Unnur Birta í 9. bekk úr Myllubakkaskóla sem fengu viðurkenningu fyrir framúrskarandi myndband og Elísa Guðbjörg, Helena Ósk og Rakel Ósk í 9. bekk úr Háaleitisskóla sem fengu viðurkenningu fyrir framúrskarandi veggspjald.

Nemendur Myllubakkaskóla og Háaleitisskóla með viðurkenningu.



Sannarlega framúrskarandi fræðsluefni sem nemendur útbjuggu fyrir hvort annað. Verðlaunin voru ekki af verri endanum, en vinningshafar fengu gjafabréf frá Antons Mamma Mía, Just Winging It og Sigurjónsbakaríi. Við færum þessum fyrirtækjum okkar bestu þakkir fyrir að styrkja verkefnið og hvetja nemendur okkar áfram.

Þó að Vika6 sé mikilvægur hápunktur, þá er fræðsla um kynferðislegt ofbeldi, ofbeldi almennt, mörk og heilbrigð samskipti samfélagslegt verkefni sem skólarnir leggja áherslu á allt árið um kring. Með því að taka þessi mál sérstaklega fyrir í einni viku tekst okkur að skapa dýpri umræðu og meiri vitund. Það er hins vegar lykilatriði að samtalinu ljúki ekki þegar skólabjallan hringir. Við hvetjum foreldra og forsjáraðila eindregið til að halda umræðunni áfram heima og ræða þessi mikilvægu gildi við börnin sín.

Við viljum þakka öllum þeim sem styrktu þetta mikilvæga verkefni og gerðu Vikuna6 2026 að jafn árangursríkum viðburði og raun bar vitni. Saman byggjum við upp öruggara og upplýstara samfélag fyrir börnin okkar.

Fyrir hönd tengiliða forvarnarteyma,

Þormóður Logi Björnsson,
aðstoðarskólastjóri í Akurskóla.