Sigursveinn hættir - „þarf meiri sátt um sameinað sveitarfélag“
Sandgerðingurinn Sigursveinn Bjarni Jónsson, oddviti Samfylkingar í Suðurnesjabæ mun ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Sigursveinn hefur setið í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar frá árinu 2022 og hafði áður starfað sem bæjarfulltrúi í Sandgerðisbæ í átta ár áður en sveitarfélögin sameinuðust árið 2018.
Sigursveinn greinir frá þessu á Facebook síðu sinni í morgun og segir þar m.a.:
„Það hefur verið bæði lærdómsríkt og krefjandi að taka þátt í uppbyggingu og mótun hins sameinaða sveitarfélags okkar.
Það er oft áskorun í sveitarstjórnarmálum að vinna eingöngu út frá fjögurra ára kjörtímabilum, en mín skoðun er að uppbygging samfélags eins og okkar kalli á skýra stefnumörkun fyrir sveitarfélagið til lengri tíma. Á yfirstandandi kjörtímabili hefði ég viljað sjá meiri samstöðu allra bæjarfulltrúa um hagsmuni Suðurnesjabæjar sem heildar, í stað þess að ala á sundrung eins og alltof oft var raunin.
Í ljósi þeirra átaka sem hafa átt sér stað á þessu kjörtímabili í pólitíkinni tel ég jafnframt heillavænlegt að nýtt fólk komi til forystu og taki þátt í að byggja upp breiðari sátt um hið sameinaða sveitarfélag okkar og framtíð þess.
Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt í gegnum árin og fyrir samstarfið við aðra bæjarfulltrúa, starfsmenn og íbúa. Ég mun að sjálfsögðu áfram leggja mitt af mörkum til samfélagsins og styðja við bakið á þeim sem taka við keflinu á næsta kjörtímabili.
Sóknarfærin liggja víða fyrir Suðurnesjabæ og ég er sannfærður um að með góðu samstarfi og skýrri framtíðarsýn mun sveitarfélagið halda áfram að þróast og dafna með jákvæðum hætti, íbúum öllum til heilla.“




