Pizzan
Pizzan

Fréttir

Telja breytingar á Fitjum ekki í samræmi við framtíðarskipulag
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 13. mars 2026 kl. 11:01

Telja breytingar á Fitjum ekki í samræmi við framtíðarskipulag

Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar hefur skilað neikvæðri umsögn vegna beiðni Lauga ehf. um verulegar breytingar á deiliskipulagi við Fitjabakka 8. Fyrirtækið, sem stefnir að uppbyggingu hótels og heilsuaðstöðu á svæðinu, hefur óskað eftir að lóðin verði stækkuð um rúma sex þúsund fermetra og að nýtingarhlutfall hennar verði rúmlega tvöfaldað. Þótt ráðið telji fyrirhugaða uppbyggingu metnaðarfulla og jákvæða fyrir samfélagið, koma framlagðar breytingar á óvart þar sem þær samræmast ekki nýju deiliskipulagi sem nú er í vinnslu fyrir svæðið upp af Njarðvíkurhöfn.

Í umsögn ráðsins er vakin athygli á því að ekki liggi fyrir hvort innviðir svæðisins geti þjónustað svo mikla stækkun, eða jafnvel það byggingarmagn sem þegar er samþykkt. Reykjaneshöfn hefur í samráði við umhverfis- og skipulagsráð unnið að heildstæðri útfærslu fyrir svæðið og telur atvinnu- og hafnarráð rétt að heimila ekki viðkomandi breytingar að svo stöddu. Lögð er áhersla á að fyrst fari fram heildstætt mat á svæðinu með hliðsjón af æskilegri atvinnuuppbyggingu til framtíðar og að tryggt sé að nauðsynlegir innviðir séu til staðar.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Þessi afstaða ráðsins er í takt við víðtækari áform um Njarðvíkurhöfn, en samkvæmt nýrri framtíðarsýn til ársins 2035 er stefnt að því að gera höfnina að öflugri fiskiskipa- og þjónustuhöfn. Áætlanir gera meðal annars ráð fyrir landfyllingum út frá Fitjum til að þjónusta hafnsækna starfsemi og auka viðlegupláss, sem undirstrikar mikilvægi þess að öll uppbygging á landi styðji við heildarskipulag hafnarsvæðisins.