Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Smáratúnsróló gæti fengið nafnið „Immuróló“ til heiðurs 93 ára nágranna
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 13. mars 2026 kl. 08:51

Smáratúnsróló gæti fengið nafnið „Immuróló“ til heiðurs 93 ára nágranna

Menningar- og þjónusturáð Reykjanesbæjar tekur vel í erindi íbúa um að nefna leikvöllinn á milli Smáratúns og Hátúns eftir Ingibjörgu Sesselju Björnsdóttur, betur þekktri sem Immu. Imma hefur um áratugaskeið vakað yfir vellinum og verið börnum í hverfinu sem amma.

Á 73. fundi menningar- og þjónusturáðs var lagt fram erindi frá Sigurrós Antonsdóttur, fyrir hönd nágranna í Smáratúni, þar sem lagt er til að leikvöllurinn fái formlega nafnið Immuróló. Tilefnið er hin árlega barna- og fjölskylduhátíð Baun, en hugmyndin er að heiðra Immu fyrir óeigingjarnt starf hennar í þágu hverfisins.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Ingibjörg Sesselja, sem varð 93 ára fyrr á þessu ári, hefur búið í Keflavík í um sjö áratugi. Í erindinu kemur fram að hún hafi tekið leikvöllinn í fóstur; hún hlúi að umhverfinu, haldi því snyrtilegu og hafi í áraraðir verið „örugg höfn“ fyrir börnin í nágrenninu.

„Imma hefur alltaf tekið vel á móti börnum í hverfinu, ýmist með pönnukökum eða ristuðu brauði, og er þekkt í hverfinu sem amma Imma,“ segir í erindi nágrannanna.

Þrátt fyrir háan aldur býr Imma enn í eigin húsnæði og er virk í bæjarlífinu. Auk þess að sinna leikvellinum hefur hún verið öflug í sjálfboðaliðastörfum fyrir Sjálfsbjörgu og í safnaðarstarfi Keflavíkurkirkju.

Nágrannar hennar telja nafngiftina vera verðskuldaða viðurkenningu á jákvæðum áhrifum hennar á samfélagið og hvatningu fyrir aðra íbúa til að láta gott af sér leiða í sínu nánasta umhverfi.

Menningar- og þjónusturáð tók vel í erindið og hefur falið sviðsstjóra og menningarfulltrúa að vinna málið áfram. Verði tillagan samþykkt er stefnt að því að afhenda viðurkenninguna formlega og setja upp skilti með nafninu „Immuróló“ í tengslum við Baun hátíðina.