Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Mokveiði og loðnuveisla hjá þorskinum í Faxaflóa: Fjörutíu tonn af fallegum þorski hjá Erlingi KE
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 13:53

Mokveiði og loðnuveisla hjá þorskinum í Faxaflóa: Fjörutíu tonn af fallegum þorski hjá Erlingi KE

Það lifnaði yfir Njarðvíkurhöfn á þriðjudagskvöld þegar Erling KE skar sig í gegnum spegilsléttan Faxaflóann, kjaftfullur af fiski. Eftir aðeins ellefu tíma á miðunum norðan við Syðrahraun kom áhöfnin að landi með 40 tonn af úrvals þorski – afrakstur sem heyrir til undantekninga á þessum slóðum. Halldór Halldórsson, sem staðið hefur í brúnni í tvo áratugi, segir loðnuna hafa dregið þorskinn í mikla þéttni og skilað sjómönnum einum besta vinnudegi vetrarins.

Erling KE byrjaði á netaveiðum á þessari vertíð í nóvember. Skipið er með þúsund tonna kvóta og Halldór segir að gangi allt eðlilega ætti hann að klárast í vor, líklega í apríl. Tíu manns eru um borð í skipinu sem er um 450 tonna fley.

Það er ekki hægt að segja annað en að þið komið hlaðnir að landi í kvöld. Hver er staðan á aflanum?

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Já, þetta var sannkallaður flottur dagur. Við erum að landa tæpum 40 tonnum af þorski. Þetta var óvænt skot; þegar við sjáum svona merki á miðunum þá drögum við gjarnan úr veiðarfærunum því við vitum að þéttnin á fiskinum er orðin mikil.

40 tonn á einum degi – er þetta ekki með því mesta sem þið eruð að koma með að landi? 

„Jú, þetta er frekar óvanalegt. Það koma svona toppar inn á milli en þetta er klárlega með því mesta sem gerist í einum túr,“ segir Halldór.

Aflinn kom úr átta trossum og fiskurinn er slægður um borð og fór í 111 kör. Karlarnir byrjuðu að draga netin og vinna fiskinn um klukkan sex um morguninn og því verki lauk um ellefu tímum síðar. Menn þurftu því bara að grípa eitthvað í gogginn inn á milli trossa og næra sig þegar aflinn var unninn. Landkrabbafréttamaðurin spurði hvort menn fái hádegismat í svona fiskiríi og fékk svar frá Hákoni Matthíassyni, einn skipverjanna sem var á vappi í brúnni þegar viðtalið við skipstjórann fór fram. „Ja…menn borðuðu bara eftir vinnuna,“ sagði Hákon og skipstjórinn tók undir það. 

„Þetta er stíf törn en við skipuleggjum okkur þannig að menn borði á milli trossna. Það þarf að hafa snör handtök til að anna svona magni,“ segir Halldór. 

Halldór Halldórsson skipstjóri og Þorsteinn Erlingsson útgerðarmaður.

Hvar fenguð þið þennan fisk? 

Við vorum í miðjum Faxaflóanum, norðan við Syðra-Hraun, en við höfum líka verið út frá Stafnesi. Siglingin á miðin tekur um einn og hálfan tíma. 

Er þetta stór og fallegur fiskur?

Þetta er stór og vænn þorskur. Meðalþyngdin er um sjö og hálft kíló og fiskurinn er bókstaflega kjaftfullur af loðnu. Hann eltir loðnuna hingað inn og þéttir sig í kringum hana, sem skýrir þessa miklu veiði. Svo er aflinn nánast hreinn; það er varla hægt að nefna meðafla, bara örfáir sandkolar og örlítið af ýsu.

Er þetta ekki byrjað að verða hrygningarfiskur?

Hann er á mjög eðlilegum stað núna. Það eru góð hrogn í honum enn þá og miðað við ástandið tel ég að hann fari ekki í fyllstu hrygningu fyrr en í apríllok.

Þú hefur stýrt skipum frá 2006. Hvar staðseturðu þessa vertíð í sögulegu samhengi? 

Veiðin í vetur er áþekk því sem við sáum í fyrra en ég verð að segja að þessi miklu „gullaldartímabil“ sem við munum eftir hér á árum áður virðast að mestu liðin. Það er minna um fisk á þessum slóðum almennt, þótt svona dagar sýni að það er enn líf í flóanum. Tíðin hefur hins vegar verið okkur einstaklega hliðholl í vetur.

Hvert fer afurðin og eru verðmætin að skila sér?

Fiskurinn fer beint í salt hjá okkur og þaðan til kaupenda í Portúgal. Verð á þorski hefur verið í sögulegu hámarki í vetur og farið hækkandi. Það gæti skýrst af framboðsskorti á alþjóðamörkuðum, til dæmis frá Rússlandi. Þetta skilar sér auðvitað beint í fín laun fyrir áhöfnina eftir svona törn.

Útgerðarmaðurinn Þorsteinn Erlingsson kom við þegar viðtalið fór fram og við spurðum hann um hvernig Portúgalarnir vildu fá fiskinn. „Þetta er bara gamaldags saltfiskur. Það eina sem við gerum meira við fiskinn í húsi er að taka hrygginn úr honum og svo í salt. En þetta var flottur túr hjá strákunum og gaman að sjá svona vænan fisk,“ sagði Þorsteinn sem var aflaskipstjóri sjálfur í gamla daga.

Skipverjarnir á Erlingi fóru til veiða strax nóttina á eftir.



Þannig að það var ekki mikil hvíld í boði eftir þennan 40 tonna dag?

„Við leggjum aftur úr vör klukkan fjögur í nótt. Karlarnir fá að leggja sig á meðan við siglum út, svo það verða allir klárir í slaginn þegar við komum á miðin. Menn eru hressir þegar það er svona fallegur fiskur í netunum,“ sagði Halldór skipstjóri.