Garðar H. Sigurðsson látinn
Garðar H. Sigurðsson, fyrrverandi kaupmaður í Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 7. mars síðastliðinn. Útför Garðars fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 16. mars næstkomandi og hefst athöfnin klukkan 11:00.
Garðar var mörgum Suðurnesjamönnum góðkunnur, en hann lætur eftir sig stóra og samhenta fjölskyldu. Í dánartilkynningu frá aðstandendum eru starfsfólki heimahjúkrunar og sjúkradeildar HSS færðar hugheilar þakkir fyrir sýnda hlýju og umhyggju í veikindum hans. Tilkynningu um andlát og útför má sjá hér en á vf.is er vefsvæði sem birtir andlátstilkynningar og minningargreinar.




