Pizzan
Pizzan

Aðsent

Fjörutíu ár í biðröð
Laugardagur 14. mars 2026 kl. 06:48

Fjörutíu ár í biðröð

Árið 2025 var ekki bara enn eitt starfsárið í sögu fimleikadeildarinnar, það var 40 ára afmælisár, uppgjörsár og á margan hátt prófsteinn á styrk deildarinnar. Allt árið var markað af gleði og fögnuði yfir sögu fimleikadeildarinnar. Þetta afmælisár markaði tímamót. Við lögðum upp með að halda 40 viðburði í tilefni afmælisins. Saman tókst okkur að efla starfið, sameina samfélagið og standa fyrir viðburðum sem settu raunverulegan svip á bæjarlífið. Í fyrsta sinn seldist upp á allar fjórar jólasýningarnar og afmælisviðburðirnir sýndu okkur skýrt að þegar við sameinum krafta okkar með gleði, ástríðu og til árangurs þá lyftist allt starfið. Ekki bara innan veggja fimleikahússins heldur út í samfélagið allt.

Iðkendur hafa aldrei verið fleiri, við bættum við nýrri íþróttagrein í starfið hjá okkur, tókum við nýju húsnæði til viðbótar við Akademíuna og unnum Íslandsmeistaratitil í hópíþrótt og efldum alla starfsemi og umgjörð til mauna.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Sigrar fimleikadeildarinnar á síðasta eru nægilega margir til að fylla heila grein en ég ætla ekki að eyða fleiri orðum í þá heldur ætla ég að setja húsnæðis- og aðstöðumál íþróttafélaga í Reykjanesbæ á oddinn.

Fyrir ári síðan stóðum við á aðalfundi fimleikadeildarinnar, full bjartsýni og vonar yfir því að á afmælisári deildarinnar yrði tekin fyrsta skóflustunga að nýju fimleikahúsi. Það voru gríðarleg vonbrigði að það skyldi ekki nást. Við höfðum það mikla trú á verkefninu að við gengum meira að segja svo langt að kaupa skófluna. Við höfum ítrekað bent á að núverandi húsnæði stenst hvorki öryggiskröfur, umfang né þann metnað sem eðlilegt er að gera til fimleikastarfs. Aðstaðan er löngu sprungin.

Staðreyndin er sú að þrátt fyrir góðar yfirlýsingar hefur engin raunhæf framvinda orðið í uppbyggingu nýs fimleikahúss eða í þróun heildstæðs íþróttamannvirkjasvæðis fyrir Keflavík og Njarðvík vegna innri átaka sem eru engum til góðs og gera ekkert til að auka þjónustu við fjölskyldur eða börn í Reykjanesbæ. Þetta er ekki gæluverkefni. Þetta snýst um aðgengi barna og ungmenna, öryggi þeirra, fagmennsku í þjálfun og jafnræði milli íþróttagreina í sveitarfélaginu.

Þegar stjórn fór yfir gamlar ársskýrslur í tilefni afmælisársins var sláandi að sjá að frá stofnun deildarinnar hefur hún aldrei verið í húsnæði sem raunverulega hæfir starfseminni. Nú, 40 árum síðar, stöndum við enn frammi fyrir sömu grunnáskoruninni. Ástandið er orðið alvarlegt. Með fjölgun yngri iðkenda blasir við sú staða að við gætum neyðst til að vísa elstu iðkendunum okkar í báðum greinum til annarra félaga næsta haust, einfaldlega vegna aðstöðuleysis.

Við höfum brugðist við af ábyrgð. Við höfum endurskipulagt rýmið eftir að Myllubakkaskóli fór út, ráðist í umfangsmiklar endurbætur, nýtt Keili, hagrætt í skipulagi og unnið markvisst að því að auka gæði í þjálfun og stjórnun. En við getum ekki endalaust sigrast á aðstöðuskorti með bráðabirgðalausnum. Metnaður og dugnaður bæta ekki upp aðstöðu sem er ekki til staðar.

Nú þarf tímasetta ákvörðun, skýra fjármögnun og áfangaskipta framkvæmdaáætlun. Nýtt fimleikahús er ekki draumsýn heldur nauðsynleg innviðaákvörðun fyrir vaxandi samfélag. Fimleikadeildin hýsir ekki bara stærstu kveníþróttina á Suðurnesjum, heldur get ég fullyrt að engin deild veiti eins fjölbreytta þjónustu og þjónusti eins breiðan hóp og við. Við tökum á móti fólki á öllum aldri í hverri einustu viku, við bjóðum börnum með sérþarfir velkomin bæði í skipulagt starf fimleikadeildarinnar en lánum einnig salinn í íþróttaiðkun fyrir bæði Öspina og Eikina. Við sýndum frumkvæði í að auka þjónustu við börn í Háaleitisskóla þar sem íþróttaiðkun barna er langt fyrir neðan það sem þekkist annars staðar í bæjarfélaginu. Við reynum eftir fremsta megni að bjóða upp á þjónustu í öllum skólafríum til að létta undir með fjölskyldum og atvinnulífinu og samkvæmt mælaborði Reykjanesbæjar voru fleiri iðkendur í fimleikadeildinni á síðasta ári heldur en í nokkurri annarri deild í bænum. Það er því með ólíkindum að við þurfum að standa í 40 ár og grátbiðja sveitarfélagið um aðstöðu við hæfi.

Við treystum því að bæjarstjórn og aðrir tengdir aðilar stígi nú það skref sem vantar. Fimleikadeildin er tilbúin að leggja sitt af mörkum. En áframhaldandi bið er ekki valkostur ef við ætlum að mæta raunverulegri eftirspurn og bjóða börnum og ungmennum sem æfa fimleika sambærilega þjónustu og tíðkast í öðrum íþróttagreinum í sveitarfélaginu.

Þrátt fyrir allt þetta, eða kannski einmitt vegna þess, stöndum við stolt. Viljinn, hæfnin og metnaðurinn eru til staðar. Það eina sem vantar er aðstaða sem hæfir því metnaðarfulla starfi sem á sér stað hjá Fimleikadeild Keflavíkur.

Framtíðin er björt. Nú þurfum við bara að tryggja að innviðirnir fylgi með svo við getum gefið börnunum okkar tækifæri til að skína næstu 40 árin.

Berglind Ragnars

Höfundur er varaformaður fimleikadeildar Keflavíkur og skipar sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.