Pizzan
Pizzan

Aðsent

Fjárfest í framtíðinni: Íþrótta- og tómstundamál í sókn
Laugardagur 14. mars 2026 kl. 06:57

Fjárfest í framtíðinni: Íþrótta- og tómstundamál í sókn

Við vitum öll hversu mikilvægar íþróttir og tómstundir eru fyrir samfélagið okkar. Í Reykjanesbæ eigum við tvö öflug og metnaðarfull ungmennafélög, Keflavík og Njarðvík, auk fjölda annarra deilda sem eiga sína heimahöfn undir merkjum ÍRB.

Ekki má heldur gleyma tómstundastarfinu, þar sem bærinn býr að faglegu starfsfólki sem hefur eflt starf félagsmiðstöðva og aukið þátttöku ungmenna í samfélaginu.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Þetta mikilvæga starf þarf að standa vörð um og efla til framtíðar. Það höfum við gert á kjörtímabilinu – og við erum hvergi nærri hætt.

Söguleg aukning fjárframlaga

Framlög til íþrótta- og tómstundamála hafa hækkað um 1,2 milljarð króna frá 2022.   Það er hækkun um 300 milljónir króna á ári að meðaltali sem þýðir rúmlega tvöföldun á framlögum. Enginn annar málaflokkur hjá Reykjanesbæ hefur vaxið jafn hratt á kjörtímabilinu. Þannig höfum við sýnt í verki að við fjárfestum í framtíðinni.

Árið 2022 fóru um 6% af skatttekjum bæjarins í íþrótta- og tómstundamál, en í dag er það hlutfall komið í 9,2%. Þessi breyting er meðvituð ákvörðun.

Reykjanesbær hefur lengi verið tekjulægra sveitarfélag en mörg þeirra sem við berum okkur saman við, og á sama tíma höfum við unnið okkur út úr erfiðri skuldastöðu fyrri tíma. Þrátt fyrir það setti núverandi meirihluti sér það markmið að forgangsraða fjármagni í þágu barna og ungmenna.

Við höfum aukið framlögin jafnt og þétt eftir því sem svigrúm hefur skapast. Þessi viðbótarmilljarður er nauðsynleg og tímabær fjárfesting í forvörnum og heilbrigðu uppeldi barnanna okkar.

Raunverulegar aðgerðir sem skipta máli

Meðal þeirra verkefna sem ráðist hefur verið í til að styrkja málaflokkinn eru:

- Beinn stuðningur við rekstur: Reykjanesbær fjármagnar nú stöður fjármálastjóra og íþróttastjóra fyrir bæði ungmennafélögin, auk þess sem bætt var við 50% starfi hjá ÍRB.

- Hærri þjálfarastyrkir: Styrkir hafa verið hækkaðir til að mæta betur launakostnaði íþróttafélaganna og tryggja gæði þjálfunar.

- Hækkun frístundastyrkja: Á kjörtímabilinu hafa styrkir hækkað úr 40 þúsund í 50 þúsund krónur á ári fyrir 4–18 ára og í 45 þúsund krónur fyrir 67 ára og eldri.

- Ný tómstundastefna: Í samvinnu við ungmennaráð Reykjanesbæjar var unnin ný tómstundastefna og úrræðum í hverfunum fjölgað. Félagsmiðstöðvum fjölgaði úr einni í fjórar á kjörtímabilinu.

Þetta eru mikilvæg skref sem við munum halda áfram að byggja ofan á. Fram undan er stórt verkefni: kynning á Íþróttaakademíunni, sem mun marka tímamót í bættri aðstöðu til íþróttaiðkunar í bænum.

Framtíðin er björt og það eru spennandi tímar fram undan í íþrótta- og tómstundamálum í okkar frábæra Reykjanesbæ. Við ætlum áfram að forgangsraða í málefnum barna og ungmenna – því þar liggur framtíð samfélagsins.

Guðný Birna, forseti bæjarstjórnar.