Pizzan
Pizzan

Aðsent

Er frístunda- og menningarnefnd ein mikilvægasta nefndin í Vogum?
Föstudagur 13. mars 2026 kl. 08:13

Er frístunda- og menningarnefnd ein mikilvægasta nefndin í Vogum?

Undanfarnar vikur hefur skapast umræða í Vogum um aðgengi barna að íþróttamiðstöðinni, þar sem gagnrýnt hefur verið takmarkað aðgengi barna að húsinu. Íbúi í sveitarfélaginu, Kolbrún, vakti athygli á málinu og stóð fyrir undirskriftasöfnun. Það framtak á hrós skilið. Það er nefnilega mikilvægt þegar íbúar láta sig málin varða og vekja upp umræðu um það sem betur má fara í samfélaginu.

Í framhaldinu svaraði nefndarmaður í frístunda- og menningarnefnd og upplýsti að nefndin hefði óskað eftir upplýsingum um umgengisreglur í íþróttahúsinu á síðasta fundi sínum. Sami nefndarmaður hafði áður skrifað grein undir yfirskriftinni „Hlúum að hjarta samfélagsins“, sem ég fagnaði einnig. Þar var réttilega bent á að samfélagið byggist ekki aðeins á innviðum og fjárfestingum heldur fyrst og fremst á fólki, þ.e. eldhugum og sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum til að gera Voga að góðum stað til að búa á.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Þessi umræða minnir okkur á mikilvægt atriði. Frístunda- og menningarnefnd er ekki bara ein nefnd af mörgum í sveitarfélaginu. Að mínu mati er hún ein sú mikilvægasta. Fáar nefndir sveitarfélagsins hafa nefnilega jafn bein áhrif á daglegt líf barna og fjölskyldna í Vogum og frístunda- og menningarnefnd.

Undir nefndina falla menningarmál, íþrótta- og æskulýðsmál, samstarf við félagasamtök og stuðningur við allt það öfluga starf sem fer fram í samfélaginu. Hlutverk hennar er að skapa jarðveg þar sem félagasamtök og félagsstarf getur blómstrað, að hlusta, hvetja, styðja og tengja saman fólk sem brennur fyrir samfélaginu. Þess vegna skiptir máli að nefndin sé metnaðarfull og sýnileg. Hlutverk frístunda- og menningarnefndar er ekki að vera eftirlitsaðili yfir sjálfstætt starfandi félagasamtökum. Hlutverk hennar er að kveikja neista í fólkinu og að styðja við hugsjónafólkið.

Þegar ég fór að skoða fundargerðir nefndarinnar síðustu ár vaknaði hjá mér einföld spurning: Ef nefndarfólk væri beðið um að nefna stærsta afrek nefndarinnar á þessu tímabili, hvert væri svarið?

Þetta er ekki spurning sem felur í sér gagnrýni heldur eðlileg umræða um hlutverk og metnað. Í lýðræðissamfélagi þurfum við reglulega að spyrja hvort við séum að nýta vettvanginn til fulls.

Það er þó mikilvægt að nefna eitt verkefni sem stendur, að mínu mati, upp úr á þessu tímabili og það er vinna við gerð íþróttastefnu fyrir sveitarfélagið Voga. Slík stefna getur orðið mikilvægt tæki til að móta skýrari sýn, styrkja og styðja við allt það góða starf sem þegar er unnið í samfélaginu.

Ég sat sjálfur í þessari nefnd á árunum 2014–2018. Þá var formaður nefndarinnar Þorvaldur Örn Árnason sem var hugmyndaríkur, kraftmikill og sannkallaður „dúer“. Samfélagið naut góðs af þeim krafti. En ég lærði líka að jafnvel litlar breytingar geta haft áhrif.

Á þeim tíma stóð ég til dæmis að breytingum á reglum um kjör íþróttamanns ársins og brann fyrir því að bætt yrði við hvatningarverðlaunum fyrir börn og ungmenni. Það var mikilvægt skref til að lyfta upp framlagi barna og ungmenna til íþrótta- og tómstundastarfs í sveitarfélaginu.

Áhrifin sáust strax. Fjölskyldur mættu í meiri mæli og viðburðurinn varð miklu stærri, að sannkallaðri samfélagshátíð. Þetta var kannski ekki stór bylting en góð áminning um að jafnvel litlar breytingar geta styrkt samfélagið.

Einmitt þess vegna skiptir máli hvernig við hugsum um hlutverk frístunda- og menningarnefndar.

Frístunda- og menningarnefnd á ekki að vera vettvangur flokkapólitíkur. Frístunda- og menningarnefnd á að vera vettvangur framtaks, hugmyndaauðgi og samstöðu þvert á flokka, þar sem góðar hugmyndir fá að vaxa og styrkja samfélagið í Vogum. Samfélög byggjast nefnilega ekki upp af reglum einum saman. Þau byggjast upp af fólki sem gefur tíma sinn, kraft og hugsjónir til að auðga líf annarra.

Þess vegna skiptir máli að við styðjum við þá eldhuga sem halda uppi öflugu íþrótta-, æskulýðs- og menningarlífi í sveitarfélaginu. Þar getur frístunda- og menningarnefnd gegnt lykilhlutverki.

Og stundum byrjar slík umræða einfaldlega á því að einhver vekur athygli á máli sem þarf að ræða. Það er því vel við hæfi að þakka Kolbrúnu fyrir að minna okkur á mikilvægi þessarar umræðu og mikilvægi þessarar nefndar.

Marteinn Ægisson,
íbúi í Vogum.