Byko
Byko

Minningar

Björgunarsveitarfólk stóð heiðursvörð við útför Garðars
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 09:55

Björgunarsveitarfólk stóð heiðursvörð við útför Garðars

Fjölmenni var við útför Garðars H. Sigurðssonar, fyrrverandi kaupsmanns í Keflavík frá Keflavíkurkirkju í gær. Garðar var líka mikill félagsmálamaður og var m.a. fyrsti formaður Björgunarsveitarinnar Stakks í Keflavík og stóð björgunarsveitarfólk heiðursvörð við útgöngu á útförinni, klætt í fatnað sveitarinnar.

Prestur var Sr. Erla Guðmundsdóttir, sóknarprestur og organisti var Arnór Vilbergsson. Kór Keflavíkurkirkju söng og voru mörg lögin sem tengjast útivist og náttúrunni en Garðar var mikill náttúruunnandi og útivistarmaður.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir