Frekari framkvæmdum við 3. áfanga Skerjahverfis frestað
Frekari framkvæmdum við 3. áfanga Skerjahverfis hefur verið frestað að svo stöddu. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Suðurnesjabæjar þar sem uppfærð fjárfestingaáætlun ársins 2026 var tekin fyrir. Gert er ráð fyrir allt að fimm milljónum króna vegna framvindureiknings sem á eftir að berast.
Samkvæmt fundargerð standa 81 milljón króna eftir af fjárheimildum til verkefna sem eru í vinnslu eða óskað er eftir að ljúka á árinu. Óskað var eftir að nýta 37,6 milljónir af þeirri fjárhæð, meðal annars í framkvæmdir og búnaðarkaup fyrir Grænaborg, umferðaröryggismál og endurbætur við Útskálahús.
Bæjarráð samþykkti áframhaldandi nýtingu fjárheimilda samkvæmt uppfærðri áætlun og vísaði henni til bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu.




