Fréttir

Stefna að opnu bókhaldi vorið 2027
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 28. nóvember 2026 kl. 08:39

Stefna að opnu bókhaldi vorið 2027

Suðurnesjabær stefnir að því að birta fyrstu útgáfu opins bókhalds á vormánuðum 2027. Tillaga þess efnis var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn.

Markmiðið er að gera fjárhagsupplýsingar sveitarfélagsins aðgengilegar og myndrænar á heimasíðu bæjarins. Þannig eigi íbúar auðveldara með að fylgjast með ráðstöfun opinberra fjármuna.

Bæjarstjóra var falið að afla tilboða í útfærslu og framsetningu og leggja niðurstöður ásamt kostnaðarmati fyrir bæjarráð.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Haukur Andreasson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, fagnaði tillögunni og sagði mikilvægt að bæjarbúar gætu betur rýnt í fjárreiður sveitarfélagsins.

Ekki kom fram í umræðunni hversu ítarlegar upplýsingar yrðu birtar í fyrstu útgáfu.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100