Nemendur í 8. og 10. bekk á Suðurnesjum kynntu sér störfin
Starfsgreinakynning grunnskólanema í 8. og 10. bekk á Suðurnesjum var haldin í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Reykjanesbæ í síðustu viku. Um 800-900 nemendur komu og kynntu sér hin ýmsu störf en yfir 100 fyrirtæki og stofnanir voru með kynningu á störfum sínum.
Kynningin er liður í sóknaráætlun Suðurnesja og er öflugt verkfæri til að hvetja ungt fólk í landshlutanum til að tengjast og kynnast ýmsum tækifærum á vinnumarkaði.
Sjónvarp Víkurfrétta kíkti á kynninguna og ræddi við nemendur og starfsfólk fyrirtækja og stofnana um störfin.

