Dubliner
Dubliner

Fréttir

„Það hefur allt of mikið verið talað um okkur en ekki við okkur“
Kristín María Birgisdóttir, formaður Atvinnulífs Grindavíkur. VF/hilmarbragi
Föstudagur 27. nóvember 2026 kl. 16:41

„Það hefur allt of mikið verið talað um okkur en ekki við okkur“

Kristín María Birgisdóttir, nýkjörinn formaður Atvinnulífs Grindavíkur, vill að fyrirtækin fái sæti við borðið þegar teknar eru stórar ákvarðanir um framtíð bæjarins. Hún segir heimkomu fleiri íbúa geta skapað svigrúm fyrir meiri atvinnustarfsemi og vill að félagið taki virkan þátt í endurreisninni.

„Það hefur allt of mikið verið talað um okkur en ekki við okkur,“ segir Kristín María þegar hún er spurð í viðtali hvað hún vilji sjá gerast fyrst. „Við þurfum að fá fleiri í bæinn og vera með öflug fyrirtæki.“

Kristín María bendir á að öflug fyrirtæki hafi verið starfandi í Grindavík frá rýmingu bæjarins. Fleiri íbúar myndu að hennar mati skapa forsendur fyrir því að fleiri fyrirtæki gætu vaxið og ný starfsemi orðið til. „Við getum fengið enn þá meiri starfsemi og fleiri tækifæri ef við fáum fleira fólk.“

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
Fyrsta verkefnið að boða stjórnina saman

Kristín María segir að fyrirtæki í sjávarútvegi og ferðaþjónustu hafi áður átt sér samstarfsvettvang innan sinna greina. Í vinnunni við Grindavík – saman í sókn undanfarið ár hafi komið í ljós að það „vantaði svolítið sameiginlega rödd fyrir öll fyrirtæki, sama hversu stór eða smá þau eru“.

Nýja félagið sé ætlað fyrirtækjum úr öllum atvinnugreinum og sjö manna stjórn þess eigi að tala máli atvinnulífsins. Kristín María segir mætinguna á stofnfundinn hafa verið góða og vísar til þess að á fundinum hafi verið talað um að hátt í hundrað manns hefðu mætt í hádeginu á föstudegi.

Fyrsta skrefið verði að boða stjórnina saman til að ræða markmið, áherslur og framtíðarsýn félagsins. Hún býst við góðu samstarfi við bæjarstjórn og vill einnig byggja upp tengsl við ríkisvaldið og önnur fyrirtæki á svæðinu.

„Reykjanesskaginn allur hefur bara mikinn hag af því að vinna saman í öllum þeim málum sem snúa að atvinnulífinu á svæðinu,“ segir hún.

Vill að fyrirtækin taki virkan þátt í endurreisninni

Kristín María segir búsetu og atvinnustarfsemi haldast í hendur. Hún nefnir endurskoðað áhættumat sem mikilvægan áfanga fyrir þau sem vilja búa og starfa í Grindavík og segir að nýta þurfi stöðuna til að gefa uppbyggingunni aukinn kraft.

„Við ætlum ekki bara að sitja á hliðarlínunni og bíða eftir að bærinn verði endurreistur fyrir okkur,“ segir hún. „Við ætlum að vera öflugur hlekkur í endurreisninni.“

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100