Banaslys á Suðurstrandarvegi
Lögreglan á Suðurnesjum staðfestir að um banaslys var að ræða í gær í umferðarslysi á Suðurstrandarvegi. Einn lést í umferðarslysinu, ökumaður fólksbifreiðarinnar.
Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Suðurstrandarvegi síðdegis í gær. Fjölmennt lið viðbragðsaðila frá lögreglunni á Suðurnesjum, Brunavörnum Suðurnesja og Slökkviliði Grindavíkur fóru á vettvang.
Strax varð ljóst á vettvangi að um alvarlegt umferðarslys væri að ræða milli vörubifreiðar og fólksbifreiðar en við áreksturinn þá kviknaði í fólksbifreiðinni.







