Laugardagur 31. október 2026 kl. 18:27

Óperuveisla í Hljómahöll á sunnudag

Þrjátíu og sex manna sinfóníuhljómsveit, stór kór, einsöngvarar og leikarar úr Þjóðleikhúsinu stíga á svið í Hljómahöll sunnudaginn 1. nóvember þegar nýstofnuð Ópera flytur dagskrána Undir sömu stjörnu. Keflvíkingurinn Jóhann Smári Sævarsson heldur um tónsprotann.

„Þetta verður alveg stórglæsilegur viðburður,“ segir Jóhann Smári. Tónleikarnir eru hluti af fimm sýninga ferð um landið sem markar upphaf starfsemi nýrrar Óperu innan Þjóðleikhússins.

Í myndskeiði með fréttinni er innlit á æfingu í Hljómahöll í dag og þar er nánar rætt við Jóhann Smára og einnig Finn Bjarnason Óperustjóra.

Áheyrendur verða leiddir í gegnum nokkrar aldir óperusögunnar, frá Monteverdi til Gunnars Þórðarsonar. Fyrir hlé hljóma meðal annars verk eftir Mozart, Beethoven, Wagner og Verdi auk tónlistar úr Carmen. Eftir hlé verður íslensk óperutónlist í forgrunni, meðal annars verk eftir Jórunni Viðar og Jón Ásgeirsson og aría úr Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson.

Leikararnir Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason tengja tónlistaratriðin saman með frásögnum, leikþáttum og húmor. Að sögn Jóhanns Smára skipta þau allt að tíu sinnum um búninga meðan á sýningunni stendur.

Sérstakur gestasöngvari í Hljómahöll verður Martina Giselle, pólsk söngkona búsett á Suðurnesjum. Hún hefur áður komið fram með Jóhanni Smára, meðal annars á Janis Joplin-tónleikum.

Á hverjum viðkomustað tónleikaraðarinnar er unnið með tónlistarfólki úr heimabyggð. Á Suðurnesjum hefur því verið sett saman hljómsveit og kór fyrir viðburðinn.

Jóhann Smári segir tónleikana einstakt tækifæri fyrir Suðurnesjamenn til að upplifa stóran óperuviðburð í heimabyggð. Sýningin í Hljómahöll er sú eina á Suðurnesjum.