Föstudagur 20. nóvember 2026 kl. 21:02

Markar tímamót fyrir atvinnulíf á Suðurnesjum

„Suðurnesin eru svæði tækifæranna og við getum verið mjög bjartsýn og horft til framtíðar,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, en Suðurnesjalína 2 var spennusett í dag. Verkefnið á sér meira en tuttugu ára sögu og segir Vilhjálmur spennusetninguna marka tímamót fyrir atvinnulíf á Suðurnesjum.

„Þetta er með stærri dögum hér á Suðurnesjum og bara fyrir Ísland allt af því að þetta hefur svo víðtæk áhrif,“ segir hann.

Fleiri stoðir undir atvinnulífið

Vilhjálmur segir áföll í atvinnulífi Suðurnesja hafa kennt heimamönnum hversu miklu máli fjölbreytt atvinnulíf skiptir. Aukinn orkuflutningur geri kleift að ráðast í verkefni sem annars kæmust ekki af stað.

„Þar erum við bæði að fjölga körfunum og fjölga eggjunum í hverri körfu,“ segir hann. Með því verði áhrifin á svæðið minni ef einn vinnustaður lokar.

Að sögn Vilhjálms er uppbygging þegar hafin í von um aukna flutningsgetu. Hann nefnir framkvæmdir á flugvallarsvæðinu, uppbyggingu landeldis á Reykjanesi og stór verkefni við gagnaver. Þótt verktakar finni fyrir samdrætti í íbúðabyggingum á hann von á miklum umsvifum í byggingariðnaði á svæðinu á næstunni.

„Við munum sjá mikið af byggingarkrönum hér á næstunni og það er mikið til út af Suðurnesjalínu 2,“ segir hann.

Vill að heimafyrirtæki fái verkefnin

Vilhjálmur segir næsta skref vera að heimafyrirtæki fái tækifæri til að sinna þjónustu við stóru fyrirtækin sem eru að byggja upp á svæðinu.

„Við viljum að okkar heimafyrirtæki þjónusti það og ef við erum ekki með þá þjónustu sem er í boði þá viljum við að hún byggist upp hér,“ segir hann.