Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Atvinnulíf Grindavíkur stofnað á fjölmennum fundi
Föstudagur 27. nóvember 2026 kl. 16:14

Atvinnulíf Grindavíkur stofnað á fjölmennum fundi

„Fyrirtækin þurfa fólkið og fólk þarf fyrirtæki“

Kristín María Birgisdóttir var kjörin fyrsti formaður Atvinnulífs Grindavíkur á stofnfundi sem fór fram í Grindavík í dag, 27. nóvember. Félaginu er ætlað að tala fyrir sameiginlegum hagsmunum fyrirtækja og leiða samstarfsverkefni í uppbyggingu bæjarins. Á fundinum lögðu bæði nýkjörinn formaður og bæjarstjóri áherslu á að endurreisn atvinnulífsins og endurreisn byggðarinnar héldust í hendur.

Pétur H. Pálsson, sem setti fundinn, taldi að um hundrað manns væru mættir. Hann sagði í léttum dúr að veðjað hefði verið á mætinguna og að vegna misskilnings hefðu verið pantaðir 70 lítrar af súpu þegar ætlunin var að panta súpu fyrir 70 manns.

Pétur sagði hlutverk félagsins vera að leiða saman stór og smá fyrirtæki, bæði þau sem störfuðu í bænum og þau sem ættu þar hagsmuna að gæta þótt starfsemin væri annars staðar. „Og við viljum vera þriðja hjólið í baráttunni við hliðina á hagsmunasamtökum íbúa og bænum,“ sagði hann.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
„Fyrirtækin þurfa fólkið og fólk þarf fyrirtæki“

Pétur vísaði til nýlegs fundar með Fasteignafélaginu Þórkötlu og sagði að viljinn til uppbyggingar sæist líka í mætingu á körfuboltaleiki, í kirkju og á aðra fundi. „Það er ennþá þessi drifkraftur og löngun hjá okkur að endurreisa það sem við misstum,“ sagði hann.

Hann sagði að fyrirtæki sem hefðu getað haldið starfsemi gangandi ættu hrós skilið. Tækifærin í bænum lægju víða, enda væri Grindavík „meira en sjávarútvegspláss“. Til þess að nýta þau þyrfti fólk að geta snúið heim. Pétur sagði það taka mikla orku að berjast fyrir heimkomu í vor og dró saman tengsl búsetu og atvinnu með orðunum: „Fyrirtækin þurfa fólkið og fólk þarf fyrirtæki.“

Vill stjórn sem tekur verkefnin strax til vinnslu

Kristín María Birgisdóttir var ein í framboði til formanns. Hún er fædd og uppalin í Grindavík, sat áður í bæjarstjórn og starfaði í 17 ár hjá sveitarfélaginu, í tíu ár sem kennari og sjö ár sem upplýsinga- og markaðsfulltrúi. Hún sagðist jafnframt vera tiltölulega nýr atvinnurekandi og hafa stofnað eigið fyrirtæki um einu og hálfu ári fyrir fundinn.

„Ég held að það sé mjög mikilvægt að þessi stjórn sé verkstjórn,“ sagði Kristín María þegar hún tók við formennskunni. Hún sagði að stjórnin þyrfti snemma að hafa á hreinu hvaða verkefnum hún vildi hrinda af stað og til hverra hún ætlaði að leita eftir stuðningi. Hún lagði áherslu á reglulegt samtal við bæjarstjórn, ríkisvaldið og félagsmenn.

„Öflugt atvinnulíf verður ekkert nema með öflugu samfélagi og öfugt,“ sagði Kristín María og bætti við að það samspil hefði einkennt Grindavík fyrir rýmingu. Hún sagðist vilja að fyrirtæki, hversu stór eða smá sem þau væru, fyndu „að þau hefðu jafn sterka rödd“.

Auk Kristínar Maríu voru Margrét Kristín Pétursdóttir, Ámundínus Ö. Öfjörð, Guðfinna Magnúsdóttir, Ragnheiður Eyjólfsdóttir, Þórólfur Júlían Dagsson og Dagmar Valsdóttir kjörin í stjórn. Fjórir höfðu verið tilnefndir þegar stjórnarkjörið hófst. Þórólfur Júlían og Dagmar buðu sig fram á fundinum og var þá lagt til að nýta öll sjö sætin sem samþykktirnar heimila.

Eitt atkvæði á hvern félagsaðila og ekkert árgjald í upphafi

Samþykktir félagsins voru afgreiddar á fundinum. Félagið er sjálfstætt og óhagnaðardrifið. Fyrirtæki, einyrkjar, stofnanir og félagasamtök geta sótt um aðild hafi þau hagsmuni tengda Grindavík og vilji vinna að markmiðum félagsins. Aðild er opin þeim sem eru með starfsstöð utan bæjarins.

Hver félagsaðili í Skilum fer með eitt atkvæði. Samkvæmt samþykktunum skal leitast við að stjórnin endurspegli breidd atvinnulífsins. Enginn einn félagsaðili, atvinnugrein eða opinber aðili getur haft þar meirihluta. Félagsmenn geta átt frumkvæði að samstarfsverkefnum og tekið þátt í vinnuhópum. Meðal verkefna félagsins eru að afla verkefnastyrkja, samnýta innviði, styðja við nýsköpun og stuðla að skilyrðum fyrir öruggri búsetu.

Árgjaldið var ákveðið núll krónur fram að fyrsta aðalfundi, sem halda skal í síðasta lagi í maí 2027. Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar og fundarstjóri, sagði að stjórnin fengi þannig svigrúm til að meta þörfina á árgjaldi og hvað teldist hóflegt. Hann sagði sameiginlegan vettvang einnig auðvelda samskipti við fyrirtækin. „Það er ein rödd og hægt að mæta á einn stað til þess að eiga þessi samtöl.“

„Hvar viljum við sjá Grindavík árið 2035?“

Þuríður H. Aradóttir Braun frá Markaðsstofu Reykjaness og ritari fundarins rakti aðdragandann að vinnu sem hófst um tveimur árum fyrir fundinn. Þá var leitað fjármagns til að styðja við atvinnulífið í bænum. Úr þeirri vinnu varð til verkefnið Grindavík – saman í sókn. Undanfarið ár hefði þar verið unnið með stjórnendum og atvinnurekendum að því að greina áskoranir, kortleggja tækifæri og móta sameiginleg verkefni þvert á atvinnugreinar.

„Með stofnun félagsins í dag verður til sjálfstæður vettvangur til að halda þessari vinnu áfram,“ sagði Þuríður. Fyrirtækin tækju með sér tengslin, þekkinguna og verkefnin sem þegar hefði verið unnið að. „Þið ráðið ferðinni,“ sagði hún við fundarmenn.

Þuríður bað nýju stjórnina og fundarmenn að horfa lengra fram á veginn. „Hvar viljum við sjá Grindavík árið 2035?“ Hún lýsti bæ þar sem fyrirtæki sæju hag í samstarfi, fólk vildi stofna fyrirtæki og fjárfesta og góð þjónusta og sterkir innviðir löðuðu að nýja íbúa. „Ungt fólk sér tækifæri til að snúa heim, skapa sér atvinnu og taka þátt í mótun samfélagsins,“ sagði hún um þá framtíðarsýn.

Fyrirtækin verði með í vinnu við áhættumat

Fjalar Sigurðarson ráðgjafi Grindavíkurbæjar sagði að vinna við áhættumat hefði hingað til einkum beinst að íbúum og að nú væri verið að færa „þungamiðjuna svolítið yfir á atvinnulíf, ferðaþjónustu og fleiri“. Hann hvatti fyrirtæki til að taka þátt þegar bærinn leitaði til þeirra. Sem dæmi nefndi hann að fyrirtæki skilgreindu fyrir fram hvernig þau myndu bregðast við mögulegri rýmingu og endurkomu og hvaða verðmætum þyrfti helst að bjarga.

Guðjón Skúlason, formaður SAR, Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi, lýsti yfir áhuga á samstarfi. „Farið með jákvæðni inn í þetta, bendið á tækifærin, bendið á hvaða möguleikar eru hérna, hvað þið eruð sterk, hvar ykkar styrkleikar liggja,“ sagði hann. Hann bauð fulltrúum nýju samtakanna á hádegisfund í Gjánni 9. desember þar sem Byggðastofnun myndi kynna starfsemi sína.

Jónatan Svavarsson var einn fundarmanna og sagði að verkefni á borð við stofnun félagsins styddu jafnframt við hagsmuni Fasteignafélagsins Þórkötlu og ríkissjóðs. „Eignir sem eru á efnahagsreikningi hérna Þórkötlu án mannlífs og atvinnulífs verða lítils virði,“ sagði hann.

Bæjarstjóri heitir samstarfi

Pétur Markan bæjarstjóri Grindavíkur sagði stofnun félagsins marka tímamót á því sem hann kallaði „endurreisnartímabilið“. Hann sagði bæjaryfirvöld þurfa að bregðast við þörfum fyrirtækja af skilningi og haga stjórnsýslunni í takt við áform þeirra um uppbyggingu. „Forsenda endurreisnarinnar er öflugt atvinnulíf,“ sagði hann.

Pétur hét stjórninni nánu samstarfi og sagði „að bærinn og bæjaryfirvöld verði algjörlega þétt og einhuga í samstarfi við þessi samtök“. Hann vék einnig að því hvað það þýddi fyrir sig að finna samheldnina í bænum eftir erfiða fundi. „Það er alltaf gott að koma heim,“ sagði hann. „Það er alltaf gott að koma í hérað, taka stöðuna og finna að maður er hluti af stórkostlegu samfélagi sem er að endurreisa stórkostlegan bæ.“

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100