Víðir segist ekki æfa á nýja vellinum í Sandgerði verði málið ekki endurskoðað
Stjórn knattspyrnufélagsins Víðis í Garði segir að félagið muni ekki nýta nýja gervigrasvöllinn í Sandgerði til æfinga nema komið verði til móts við sjónarmið þess og málið endurskoðað í samráði við félagið. Stjórnin hefur óskað eftir fundi með bæjarstjórn Suðurnesjabæjar.
Í bréfi til bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar lýsir stjórn Víðis yfir vonbrigðum með að að hennar sögn hafi ekkert samráð verið haft við félagið áður en ákvarðanir voru teknar um uppbyggingu og fyrirkomulag vallarins. Stjórnin segir ákvarðanirnar hafa bein áhrif á starfsemi félagsins, iðkendur þess og framtíðarskipulag.
„Að mati stjórnar Víðis er óásættanlegt að ákvarðanir sem varða starfsemi og hagsmuni félagsins séu teknar án þess að félagið fái tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri,“ segir í bréfinu.
Erindið var lagt fram til kynningar í bæjarráði Suðurnesjabæjar í vikunni. Haukur Andreasson fulltrúi D-listans bókaði að listinn tæki jákvætt í beiðni Víðis um að fá áheyrn og legði til að félagið fengi að koma fyrir bæjarráð.
Stjórn Víðis segist reiðubúin til samtals og samstarfs og vill að á fundi verði farið yfir sjónarmið félagsins og leitað sameiginlega að lausn.







