Fréttir

Niðurgreiðsla vegna dagforeldra hækkar um 12.592 krónur á barn
Laugardagur 28. nóvember 2026 kl. 13:33

Niðurgreiðsla vegna dagforeldra hækkar um 12.592 krónur á barn

Bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykkti að hækka niðurgreiðslu vegna þjónustu dagforeldra um 12.592 krónur á barn á mánuði frá janúar 2027. Hækkunin á að mæta fyrirhugaðri gjaldhækkun dagforeldra svo hún leggist ekki á foreldra. Málinu var vísað til vinnu við fjárhagsáætlun.

Samtök dagforeldra á Suðurnesjum óskuðu eftir hækkuninni. Viðmiðunargjald dagforeldra á að hækka um 6,41 prósent í janúar, úr 196.405 krónum á mánuði í 208.997 krónur.

Á sama fundi samþykkti bæjarráð að gera sjö milljóna króna viðauka vegna aukinna útgjalda til dagforeldra og heimgreiðslna árið 2026. Gert var ráð fyrir rúmlega 36 milljónum króna í málaflokkinn en heildarútgjöld eru nú áætluð um 43 milljónir. Viðaukinn fer til bæjarstjórnar til staðfestingar.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100