Gunnar Þórarinsson borinn til grafar miðvikudaginn 18. nóvember
Útför Gunnars Þórarinssonar, viðskiptafræðings og fyrrverandi bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ, fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 18. nóvember klukkan 14. Gunnar lést á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum 3. nóvember, 77 ára að aldri.
Gunnar fæddist í Reykjavík 11. apríl 1949. Hann var viðskiptafræðingur og húsasmiður að mennt og flutti ásamt fjölskyldu sinni til Njarðvíkur árið 1976. Hann kenndi viðskiptagreinar við Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá 1977 til ársloka 1990 og rak fyrirtækið Rekstrarþjónustuna ásamt eiginkonu sinni um áratugaskeið.
Gunnar tók virkan þátt í íþrótta- og félagsmálum á Suðurnesjum. Hann var meðal annars formaður knattspyrnudeildar UMFN, Íþróttabandalags Suðurnesja og Golfklúbbs Suðurnesja. Hann hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín innan íþróttahreyfingarinnar og sat jafnframt um árabil í sóknarnefnd Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Gunnar sat í bæjarstjórn Reykjanesbæjar árin 2010–2022, fyrst fyrir Sjálfstæðisflokkinn og síðar fyrir Frjálst afl. Hann gegndi um skeið embætti forseta bæjarstjórnar, átti sæti í bæjarráði og var formaður stjórnar HS veitna árin 2015–2019.
Eftirlifandi eiginkona Gunnars er Steinunn Sighvatsdóttir. Börn þeirra eru Guðni Þór, Sighvatur Ingi og Sunna.







