Reykjanesbær Myrkvastund
Reykjanesbær Myrkvastund

Minningar

Andlát: Jóhann R. Benediktsson
Þriðjudagur 11. ágúst 2026 kl. 10:31

Andlát: Jóhann R. Benediktsson

Jóhann Ragnar Benediktsson (Jói Ben) málarameistari, lést þann 6. ágúst síðastliðinn, 95 ára gamall. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 19. ágúst og hefst athöfnin klukkan 13:00.

Jói Ben fæddist 14. nóvember 1930 á Þórkötlustöðum, Grindavík. Foreldrar hans voru Benedikt Benónýsson, útvegsbóndi og Magnúsa Aðalveig Ólafsdóttir, húsfreyja, bæði fædd í Þórkötlustaðahverfi. Jói ákvað snemma að læra málaraiðn og flutti til Keflavíkur aðeins 16 ára gamall, og fór að læra málaraiðnina ári síðar hjá Jóni Páli Friðmundsyni. Jói stofnaði ásamt öðrum Málaravertaka Keflavíkur árið 1957 og sat í stjórn þess lengi vel. Hann var formaður félagsins 1978-1990, forstjóri 1990-1997, og framkvæmdastjóri frá 1997, þangað til hann fór á eftirlaun.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Jói gekk ungur í Ungmennafélag Keflavíkur og var um tíma framkvæmdastjóri félagsins og sá um rekstur á Ungó, húsi félagsins. Þar hitti hann stúlku sem hét Kristín sem varð síðar eiginkona hans til 49 ára.

Jói var ekki aðeins við stjórn Ungmennafélagsins, heldur var hann líka íþróttamaður sjálfur og mikill keppnismaður. Fyrst var hann í frjálsum íþróttum og vann til ýmissa verðlauna, þar á meðal var hann annar í hástökki á Íslandsmóti. Síðar byrjaði Jói að spila golf af miklum áhuga. Hann fékk sín fyrstu verðlaun 1966 sem voru fyrir mikil framför. Það sýnir hversu ákafur hann var í golfinu að hann var komin til Spánar aðeins 4 árum seinna með þremur öðrum golfurum sem valdir voru til að keppa fyrir Íslands hönd í Eisenhower-móti. Ferðin varð enginn frægðarför enda völlurinn miklu lengri en þeir voru vanir, sandglompur út um allt og hitabylgja á Spáni. En Jói hafði samt gaman af þessu öllu saman.

Hann var í landsliði Íslands 1970 og 1974, öldungalandsliði 55 ára og eldri, 1986-1997, og öldungalandsliði 70 ára og eldri, 2000-2001. Hann var landsliðseinvaldur karla í golfi 1988-1993, og urðu þeir Norðurlandameistarar 1992 undir hans stjórn. Hann sagði oft skemmtilegar sögur frá öllum mótum sem hann tók þátt í, innanlands sem utan. Hann mundi mörg skorin, vellina, og hverjir voru í hvaða ferð alveg til síðasta dags. Jói var alltaf félagi í Golfklúbbi Suðurnesja og var gerður að heiðursfélaga 2009. Jói varð á sínum ferli tvisvar klúbbmeistari GS, og starfaði í mótanefnd í 20 ár.

Jóhann Ragnar lætur eftir sig þrjú börn: Benedikt, Kristjbörgu og Jóhönnu. Barnabörnin eru 7 talsins og barnabarnabörnin 14.

Hljómahöll
Hljómahöll