Fréttir

Neyðarkyndistöðvar ekki tilbúnar þrátt fyrir yfirvofandi gosvá
Þriðjudagur 10. nóvember 2026 kl. 06:08

Neyðarkyndistöðvar ekki tilbúnar þrátt fyrir yfirvofandi gosvá

Olíukatlar fyrir neyðarkyndistöðvarnar á Fitjum og í Rockville hafa ekki verið settir upp fyrir komandi vetur þrátt fyrir áframhaldandi hættu á kvikuhlaupi og eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni. HS Veitur segja í svari vegna fyrirspurnar Víkurfrétta hafa kallað eftir því að stjórnvöld tryggi nauðsynlegan viðbúnað til að verja húsnæði og lagnakerfi á Suðurnesjum fyrir frostskemmdum ef heitavatnsflutningur frá Svartsengi rofnar.

Neyðarkyndistöðvarnar á Fitjum og í Rockville voru settar upp í lok árs 2025 í tengslum við náttúruhamfarirnar á Reykjanesskaga. Þær voru meðal fjölmargra viðbragðsaðgerða stjórnvalda og almannavarna og áttu að tryggja varakyndingu ef heitavatnsflutningur frá Svartsengi stöðvaðist að vetri til. Meginmarkmiðið var að koma í veg fyrir umfangsmiklar frostskemmdir á húsum og lagnakerfum.

Undanfarna vetur hafa stöðvarnar verið hafðar til reiðu með nauðsynlegum búnaði, þar á meðal olíukötlum sem stjórnvöld hafa leigt erlendis frá. Kötlunum hefur verið skilað á vorin vegna mikils leigukostnaðar og minni þarfar fyrir slíkan viðbúnað yfir sumartímann.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Varmaskiptar sem almannavarnir létu smíða eru enn á stöðvunum en olíukatlarnir hafa ekki verið fluttir til landsins og settir upp fyrir þennan vetur að því er kemur fram í svari frá Páli Erland, forstjóra HS Veitna. Neyðarkyndistöðvarnar eru því ekki tilbúnar til að gegna því hlutverki sem þeim var ætlað ef heitavatnsflutningur frá Svartsengi rofnar.

Þessi staða vekur athygli í ljósi þess að áfram er talin hætta á náttúruhamförum á svæðinu. Samkvæmt áhættumati er kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni enn talin líklegasta sviðsmyndin, enda heldur kvika áfram að safnast fyrir undir Svartsengi.

HS Veitur hafa kallað eftir því að stjórnvöld tryggi áframhaldandi viðbúnað neyðarkyndistöðvanna fyrir íbúa og atvinnulíf á Suðurnesjum.

Með veturinn fram undan og áframhaldandi gosvá er því enn ótryggt það varaúrræði sem komið var á fót til að draga úr afleiðingum hugsanlegs rofs á heitavatnsflutningi frá Svartsengi.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100