Viðskipti

Rafholt verður ACCORA – nýtt afl í orku- og innviðalausnum
Helgi Ingólfur Rafnsson framkvæmdastjóri ACCORA og Örn Þór Alfreðsson aðstoðarframkvæmdastjóri ACCORA.
Mánudagur 9. nóvember 2026 kl. 11:51

Rafholt verður ACCORA – nýtt afl í orku- og innviðalausnum

Rafholt og orku- og innviðasvið Origo hafa sameinast undir nafninu ACCORA. Sameinað félag byggir á 39 ára reynslu og verður leiðandi í þjónustu við uppbyggingu og rekstur gagnavera og stafrænna innviða á Íslandi.

Nýja nafnið var kynnt starfsfólki á starfsmannafundi í síðustu viku og var mikill samhugur um það. Frá og með 6. nóvember, starfar sameinað félag alfarið undir merkjum ACCORA.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Með sameiningunni verður til eitt öflugasta tækni- og þjónustufyrirtæki landsins á sviði orku og innviða, sem jafnframt starfar á erlendum mörkuðum. Þar mætast nærri fjögurra áratuga sérþekking á varaafls- og kælilausnum og yfir tveggja áratuga reynsla af rafverktöku, fjarskiptum og innviðauppbyggingu.

Markmiðið er að veita gagnaverum, stærri fyrirtækjum og stofnunum heildstæða þjónustu, allt frá hönnun og uppsetningu til vöktunar, viðhalds og daglegs reksturs mikilvægra innviða.

Gagnaverin kalla á sérþekkingu

Uppbygging gagnavera hefur verið mest vaxandi grein íslensks atvinnulífs undanfarin ár, knúin áfram af aukinni eftirspurn eftir gagnavinnslu og gervigreind. Bæði félögin hafa um árabil tekið þátt í uppbyggingu stærstu gagnavera landsins og byggt upp sérþekkingu sem erlendir aðilar sækjast í auknum mæli eftir. Gert er ráð fyrir að velta ACCORA tvöfaldist á þessu ári og að stöðugur vöxtur haldi áfram næstu misseri.

„Ísland er að byggja upp stafræna innviði hraðar en nokkru sinni fyrr og gagnaverin eru þar í fararbroddi. ACCORA ætlar sér að vera leiðandi afl í frekari uppbyggingu og rekstri gagnavera og halda áfram að þjóna þeim góðu viðskiptavinum sem félögin vinna nú þegar með. Við tryggjum, í bókstaflegri merkingu, strauminn, fjarskiptin, varaaflið og kælinguna og viljum vera sá samstarfsaðili sem viðskiptavinir treysta þegar mest á reynir,“ segir Helgi Ingólfur Rafnsson, framkvæmdastjóri ACCORA. „Nafnið er nýtt en fólkið, reynslan og þekkingin byggja á áratuga grunni.“

Íslenskt félag í alþjóðlegu umhverfi

„Við erum íslenskt félag í alþjóðlegu umhverfi. Við vinnum með erlendum framleiðendum og þjónustum alþjóðleg fyrirtæki sem reka hluta af mikilvægustu innviðum sínum hér á landi,“ segir Örn Þór Alfreðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri ACCORA. „Með sameiningunni getum við boðið allt frá rafverktöku til varaafls og kælingar undir einu þaki, með víðtæka þekkingu á íslenskum iðnaði og fólki sem er til staðar þegar á reynir. Við leggjum metnað í að efla sérþekkingu hér á landi og mæta ört vaxandi þörf fyrir þekkingu og uppbyggingu á flóknum tæknikerfum.“

Hvaðan kemur nafnið?

ACCORA er nýyrði sem var valið til að virka jafnt á Íslandi og erlendis. Fyrstu stafirnir, AC, vísa í riðstraum (e. alternating current) og heim rafmagns og orku. Í nafninu má einnig greina orðið CORE, kjarna, enda er hlutverk félagsins að tryggja þá innviði sem eru kjarninn í rekstri viðskiptavina. Nafnið kallast jafnframt á við ensku orðin accord, accurate og connect – samhljóm, nákvæmni og tengingar.

Merki félagsins sækir form sitt í þverskurð rafmagnskapals og táknar ljós, blossa og kjarna. Blái liturinn sem einkenndi Rafholt heldur sér, enda heldur sagan áfram. Slagorð ACCORA er „Sérþekking á orku og innviðum.“

Sagan nær aftur til 1987

Rætur ACCORA ná aftur til ársins 1987 þegar Tölvulagnir urðu umboðsaðili APC, sem í dag er hluti af Schneider Electric. Starfsemin færðist til Nýherja árið 1992 og síðar til Origo. Rafholt var stofnað árið 2002 á grunni tæknireynslu frá varnarsvæðinu á Miðnesheiði og óx í einn stærsta rafverktaka landsins. Félagið gegndi lykilhlutverki í ljósleiðaravæðingu Suðurnesja, kom meðal annars að tæknilausnum í Hörpu, Hellisheiðarvirkjun og Bláa Lóninu og hefur frá árinu 2013 verið á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki. 

Um ACCORA

ACCORA er íslenskt tækni- og þjónustufélag á sviði orku og innviða. Félagið hannar, setur upp og þjónustar flókin rafkerfi og veitir heildarlausnir í rafverktöku, fjarskiptum, varaafli og kælingu. ACCORA er jafnframt umboðs- og þjónustuaðili fyrir búnað frá leiðandi framleiðendum á borð við Schneider Electric og ThermoKey. Viðskiptavinir félagsins eru meðal annars gagnaver, orkufyrirtæki, byggingariðnaðurinn og aðrir stórnotendur sem reiða sig á örugga og samfellda orku.

ACCORA varð til árið 2026 við sameiningu Rafholts og orku- og innviðasviðs Origo. Hjá félaginu starfa um 170 manns og eru höfuðstöðvar þess að Smiðjuvegi 4b–e í Kópavogi og er jafnframt með starfsstöð í Reykjanesbæ.

accora.is

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100