Framtíð íslenskra hafna rædd á Suðurnesjum
Hafnasamband Íslands hélt 45. hafnasambandsþing sitt í Hljómahöll í Reykjanesbæ dagana 22. og 23. október sl. Þingið var haldið í samstarfi við hafnirnar á Suðurnesjum, Grindavíkurhöfn, Reykjaneshöfn og Sandgerðishöfn. Um hundrað þingfulltrúar frá 31 aðildarhöfn sóttu þingið.
Hafnasamband Íslands var stofnað 12. nóvember 1969 að frumkvæði Sambands íslenskra sveitarfélaga og hét upphaflega Hafnasamband sveitarfélaga. Árið 2006 var nafni samtakanna breytt í Hafnasamband Íslands, meðal annars til að opna fyrir aðild hafna sem ekki eru í eigu sveitarfélaga.
Meginmarkmið Hafnasambandsins hefur frá upphafi verið að gæta sameiginlegra hagsmuna íslenskra hafna, efla samstarf þeirra og vera öflugur málsvari hafna gagnvart stjórnvöldum. Hlutverk hafna hefur þróast mikið á síðustu árum og verkefni Hafnasambandsins samhliða því. Auk hefðbundinna hafna- og samgöngumála hafa meðal annars umhverfismál, orkuskipti, öryggismál, alþjóðlegir flutningar, skemmtiferðaskip og sjálfbær rekstur fengið aukið vægi.
Á þinginu var samþykktar ályktun um ýmis mikilvæg málefni hafna. Þar má nefna uppbygging hafna og þjóðaröryggi, endurskoðun hafnarlaga, orkuskipti í höfnum, skattlagning skemmtiferðaskipa og aðgengi að dýpkunarþjónustu.
Jóna Árný nýr formaður
Á þinginu var jafnframt kjörin ný stjórn Hafnasambands Íslands til næstu tveggja ára. Jóna Árný Þórðardóttir, bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, var kjörin formaður Hafnasambandsins og tekur hún við af Lúðvík Geirssyni, hafnarstjóra Hafnarfjarðarhafnar. Fulltrúi Suðurnesja í stjórn er Alexandra Jóhannesdóttir.
Samþykkt var að næsta hafnasambandsþing verði haldið í Vestmannaeyjum haustið 2028.





