Axel Jónsson er með fleiri líf en kötturinn
Hress eftir tíundu hjartaþræðinguna
„Mér líður alltaf vel eftir þræðingar,“ segir Axel Jónsson, stofnandi og stjórnarformaður Skólamatar. Nýkominn úr sinni tíundu hjartaþræðingu segir hann frá áföllum og ævintýrum í veitingarekstri, húsinu sem hann varð að selja til að greiða skuldir og gæfunni sem fylgdi því að láta börnin sín taka við stjórninni.
„Mér líður bara rosalega vel,“ segir Axel, sem þekkti einkennin þegar hann fór í göngutúr með Þórunni Halldórsdóttur, eiginkonu sinni, í síðustu viku.
„Ég var búinn að finna fyrir þessu síðustu tvo mánuði, voðalega lítið, en ég vissi þetta. Það er ekki nema ár síðan ég fór í níundu þræðinguna.“
Eftir örfá skref fann hann að eitthvað var að. Hann lauk samt göngunni og settist í sófann þegar heim kom.
„Þetta er sami verkurinn og síðast og lýsir sér nákvæmlega eins. Ég hugsaði með sjálfum mér: Hvað á ég að gera? Það er bara með okkur karlmenn, við viljum ekki alveg viðurkenna þetta strax.“
Hann kallaði í Þórunni og bað hana að hringja í 112 og endaði svo á að hringja sjálfur. Morguninn eftir var hann kominn í tíundu hjartaþræðinguna.
„Ég var dálítið harður í þetta skipti þótt verkurinn væri ekki mikill. Hugsaði með mér: Ég fer ekkert heim. Af því að ég veit að þetta er eitthvað í kransæðunum.“
Hann fylgdist vakandi með aðgerðinni á skjá.
„Ég sá hvernig hann opnaði æðina. Þetta var hliðarkransæð sem var smá stífla í og hann bara lagaði það og sagði: Ég sé þig seinna.“
Fyrsta þræðingin aðeins 41 árs
Fyrsta hjartaþræðingin var árið 1991, fyrir aldarfjórðungi. Þá var Axel 41 árs.
„Það var töff hjartaþræðing og önnur hjartaþræðing var í raun og veru hjartaáfall með sjálfsagt einhverri skemmd. Það var rosalega töff.“
Hefur hann verið hræddur um að deyja eftir þessa löngu reynslu af hjartaveseni?
„Sjálfsagt, eflaust, það er engin spurning. En seinni ár hefur það dvínað. Maður treystir þessu fólki, þessum læknum og hjúkrunarfólki.“
Hann segir framfarirnar gríðarlegar frá fyrstu aðgerðinni.
„Ég man eftir fyrstu þræðingunni. Þá var þetta gömul vél og rosalega skrýtið hvernig þeir gerðu þetta. Í dag er þetta í raun og veru rosalega einfalt. Vellíðanin er svo gríðarleg eftir svona aðgerð. Þér líður svo vel og þú ert svo sáttur.“
Missti ömmu sína, systur og afa
Axel ólst upp hjá afa sínum og ömmu á Borg í Sandgerði. Fyrsta minningin er af því þegar hann horfði út um gluggann á vindmyllu við húsið.
„Þar var ég alinn upp hjá afa og ömmu við gott atlæti. Fyrstu leikfélagarnir mínir voru fiskiflugurnar í gluggunum.“
Hann var fjörugur strákur og rúmlega það.
„Það voru engar greiningar í gamla daga en ég var ofvirkur, lesblindur og með athyglisbrest. Ég var einu sinni í viku hjá læknum að láta sauma í putta eða í hausinn eða einhvers staðar. Ég var alltaf einhvers staðar.“
Tíu ára gamall varð hann fyrir miklum missi.
„Amma mín og systir mín deyja í bílslysi. Það er náttúrulega mikil sorg en afi lifði þetta bílslys af. Ég er hjá honum í eitt ár í viðbót en þá deyr hann líka.“
Eftir það var hann til skiptis hjá foreldrum sínum, í Sandgerði og Hafnarfirði. Vinnan hófst hins vegar löngu áður. Um fimm ára aldur flokkaði hann gosflöskur í trékassa og síðar vigtaði hann kartöflur og matarkex í verslun föður síns.
„Afi minn var kaupmaður og pabbi minn var kaupmaður þannig að það var auðvelt að fá vinnu.“
Um þrettán eða fjórtán ára aldur rak hann fiskbúð fyrir föður sinn.
„Ég var ekki með fiskibollur eða marineraðan fisk. Þetta voru gellur, kinnar, saltfiskur, skata og reyktur fiskur.“
Var rekstraráhuginn þá vaknaður?
„Nei, þú varst ekkert að hugsa. Þú varst bara að vinna og fá útborgað.“
„Þú stjórnar mér ekki. Ég ætla að verða kokkur“
Axel kláraði Flensborgarskólann í Hafnarfirði eftir grunnskólagöngu í Sandgerði. Hann var ekki viss um framtíðarstarfið sitt. Eftir gagnfræðanámið hugðist hann læra iðn. Rafvirkjun, pípulagnir eða smíðar komu til greina en atvinnuástandið var erfitt og námssamningur fékkst ekki.
Það var svo síðdegis haustið 1968 og Axel var að vinna í verslun föður síns þegar hann fékk símtal frá móður sinni í Hafnarfiðri. Hún spurði: „Axel, viltu ekki verða kokkur?
Axel leist vel á það. Hann þurfti þá að taka rútuna um kvöldið og mæta í skólann morguninn eftir. Friðrik, móðurbróðir hans og skólastjóri Hótel- og veitingaskólans, hafði útvegað honum pláss.
„Ég fór að leita að pabba og sagði: Pabbi, ég er að fara í bæinn til mömmu. Nú? Já, ég ætla að verða kokkur. Já, allt í lagi, bless.“
Ekki þurfti að ræða það frekar.
„Ég fór heim að ná í tannburstann og það litla sem ég setti í eina litla tösku. Klukkan átta um morguninn var ég mættur upp í Sjómannaskóla.“
Í starfsnáminu í flugeldhúsinu á Keflavíkurflugvelli mætti hann mótlæti.
„Það var einn maður sem gerði í því að rakka mig niður. Ég væri kaupmannssonur, yrði aldrei kokkur og ætti bara að vera búðarmaður.“
Eitt laugardagskvöld gekk hann út og hugleiddi að hætta. Vinirnir voru á balli í Stapa.
„Ég hugsaði: Á ég ekki bara að hætta þessu helvítis kokkaríi? Ég verð aldrei kokkur, það er líklega rétt sem hann er að segja.“
Svo sneri hann við.
„Ég labbaði inn í eldhús og sagði við viðkomandi: Þú stjórnar mér ekki. Ég ætla að verða kokkur. Og hélt áfram að vinna. Við vorum bestu vinir seinna.“
Eftir námið bauðst honum áframhaldandi starf á Hótel Loftleiðum. Þegar hann nefndi launakröfuna stóð hótelstjórinn upp, tók í hönd hans og þakkaði samstarfið.
„Það var ekki gefinn séns á að ræða launin eða eitthvað slíkt.“
Eftir stutt atvinnuleysi og starf á öðrum veitingastað kom enn símtal frá Friðriki. Nú vantaði matreiðslumann á Laugarvatn.
Axel og Þórunn fóru að skoða aðstæður og leist vel á þær. Þau dvöldu þar í fimm ár með Jóni syni sínum. Axel segir árin hafa verið góðan skóla. Fjölskyldan hafði frítt fæði og húsnæði, gat lagt fyrir og byggt sér raðhús í Keflavík áður en hún flutti aftur suður með sjó.
Þar reyndi hann fyrst að fá vinnu í Fríhöfninni, án árangurs. Stuttur túr sem kokkur á sjó hjá þeim Hilmari og Oddi á Stafnesi KE sannfærði hann svo um að sjómennskan ætti ekki við hann.
Tengdamóðir hans átti hins vegar tillögu. Hún hafði rekið verslun að Smáratúni 28 og var að hætta. Gæti hann ekki nýtt húsnæðið fyrir veisluþjónustu?
Axel innréttaði eldhús og hófst handa. Verkefnin urðu fleiri, veislurnar stærri og vinnudagarnir lengri. Hann var beðinn um mat fyrir fermingar og samkomur vítt og breitt um Suðurnes og tók verkefnunum fagnandi.
Þarna kom líka fljótt í ljós eiginleiki sem átti eftir að fylgja honum lengi.
„Eitt af því sem ég hef ekki kunnað, það er að segja nei.“
Bæjarstjórnin fékk steik en ekkert vín
Árið 1983 opnaði hann Glóðina við Hafnargötu. Þar voru steikur og sjávarréttir en ekkert vínveitingaleyfi.
„Það voru margir búnir að sækja um vínveitingaleyfi á Suðurnesjum og því var alltaf hafnað.“
Axel bauð bæjarstjórninni í mat.
„Þeir pöntuðu flottar steikur og sjávarrétti. Svo þegar allir voru búnir að fá matinn sögðu þeir: „Heyrðu, hvar er vínið? Við ætlum að fá hvítvín og rauðvín með steikinni. Já, nei, það er ekki í boði í þessum bæ,“ sagði ég. Því er alltaf hafnað.“
Viðbrögðin létu ekki á sér standa.
„Þá sögðu þeir: Hafðu samband við okkur eftir helgi. Ég gerði það og vínveitingaleyfið kom.“
Varnarliðsmenn frábærir kúnnar
„Þeir komu klukkan fimm og voru búnir að borða klukkan sjö þegar Íslendingarnir komu. Keflvíkingum fannst hálfhallærislegt að fara á veitingastað að borða en borða ekki heima hjá sér. Þetta var ekki menning þá. Það tók tíma að fólk þyrði að fara og fá sér að borða en það breyttist fljótt.“
Síðan bættust við flugmatur fyrir Arnarflug, pizzustaðurinn Langbest og dansleikir á efri hæðinni.
„Allt var í gangi og þetta var bara mér ofviða í raun og veru. Ég kom stundum heim klukkan fimm um morguninn úr vinnu þegar ég var búinn að vera frá því átta. Svona var lífið. Þetta var bara rugl.“
Hann seldi veitingastaðina og einbeitti sér að flugmat og veisluþjónustu á Iðavöllum.
Heimilið fór fyrir skuldunum
Þegar Arnarflug varð gjaldþrota segir Axel félagið hafa skuldað sér sautján milljónir króna.
„Þeir höfðu ekki borgað mér í þrjár vikur. Þegar ég kom heim voru þeir farnir á hausinn og ég fékk ekki borgað. Hvað átti ég að gera? Ég átti að borga skuldirnar sem lágu á mér. Svo ég seldi húsið.“
Hann hélt áfram og var einu sinni flugvellinum í Lúxemborg kom hann auga á Arngrím Jóhannsson hjá Atlanta.
„Ég hljóp bara á hann og sagði: Sæll, Arngrímur. Axel Jónsson heiti ég. Ég var með matinn fyrir Arnarflug. Á ég ekki að taka matinn fyrir þig í Atlanta?“
Arngrímur bað hann að hitta sig í Mosfellsbæ á mánudagsmorgni.
„Ég var mættur. Þar skrifuðum við undir samning. Ég hafði reynslu, kunni þetta og hafði gott orð á mér fyrir að framleiða mat og þjóna fólki. En ég hafði ekkert gott orð á mér í bankanum.“
Þrír leikskólar og ný byrjun
Undir lok tíunda áratugarins var Axel aftur með lítið að gera. Hugmyndin að skólamáltíðum hafði þá lengi blundað í honum, allt frá því hann sat í bæjarstjórn og skólanefnd og rætt var um einsetningu skóla.
„Þá hugsaði ég með mér: Þarna er tækifæri.“
Á erfiðum degi á Iðavöllunum tók hann ákvörðun um að bretta upp ermarnar. Skömmu síðar hringdi Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, og bað hann að bjarga matarmálum þriggja leikskóla.
Axel hringdi í vin sinn, matreiðslumanninn Guðjón Vilmar Reynisson.
„Villi, það er komið verkefni. Ertu til í að koma? Hann kom til mín og við byrjuðum að undirbúa. Viku seinna vorum við byrjaðir að afgreiða þrjá skóla í Hafnarfirði.“
Þetta varð upphaf Skólamatar. Til að undirbúa reksturinn keypti Axel tölvu, lærði undirstöðuatriði í Excel og dvaldi í viku hjá vinafólki á Ísafirði við áætlanagerð.
„Ég setti alla matseðla, verð og allt saman inn í tölvuna. Ég reiknaði út að til þess að ná núlli þyrfti ég þrjú þúsund skólamáltíðir.“
Bankarnir voru tregir til að lána. Hann samdi við lánardrottna og bað um frest.
„Ég ætlaði mér að borga. Ég þurfti bara frest.“
Að lokum fékkst fyrirgreiðsla og viðskiptunum fjölgaði. Nú ætlaði hann líka að hafa allt uppi á borðum. Hann viðurkennir að hafa áður tekið þátt í „svörtum“ greiðslum og ekki gefið allt upp.
„Ég hætti því öllu, hafði nótu fyrir öllu og gerði allt rétt. Þetta átti ekki að klikka.“
„Þrír geta ekki stjórnað“
Fanney dóttir Axels kom til starfa og tók utan um fjármálin.
„Ég sagði við hana: Ég verð á gólfinu að vinna og framleiða. Þú sérð um heftið, borgar reikninga og rukkar.“
Jón sonur hans, Nonni, hafði síður viljað koma nálægt veitingarekstri en gekk til liðs við fyrirtækið árið 2009.
„Ég fann alveg að þrír geta ekki stjórnað. Það verður einn að ráða. En það var gaman að fá börnin í fyrirtækið.“
Axel segir Jón vera varkáran á meðan hann sjálfur komi með nýjar hugmyndir daglega.
„Sumar fá að lifa en aðrar ekki. Ég fann að ég átti að draga mig út og sætta mig við að láta þau um þetta. Það hefur verið gæfa hjá mér.“
Nú segir hann um 250 starfsmenn hjá Skólamat vera með 18 þúsund aðalmáltíðir framleiddar daglega og fimmtán þúsund skammta af morgunverði og síðdegisnesti til viðbótar.
Skráning á neyslu og afgöngum hafi gert fyrirtækinu kleift að áætla magnið nákvæmar.
„Við erum búin að vinna niður matarsóun. Það er til hagsbóta fyrir okkur og samfélagið.“
Maturinn byggist áfram á kunnuglegum réttum. Hvað er verið að elda ofan í börnin?
„Íslenskan mat, steiktan fisk, soðinn fisk. Þetta er ekkert flókið. Fiskibollur, grjónagrautur, kjötsúpa, hakk og spagettí. Æðislegur matur.“
Axel segir traust skólastjórnenda skipti miklu.
„Ef skólastjórinn sleppur við að hugsa um mötuneytið og treystir fólkinu sem sér um það er það gríðarlegur léttir á hans álagi. En við gleymum því aldrei að skólastjóri ræður á skipinu. Við erum bara hluti af áhöfninni.“
Úr 4 lítrum í 4-5 þúsund skammta
Á Ljósanótt er Axel enn í kokkagallanum að gefa kjötsúpu. Ásmundur Friðriksson hafi átt hugmyndina.
„Ég byrjaði með fjörutíu lítra pott. Í dag erum við að fara í fjögur til fimm þúsund skammta. Þetta er svakalega gaman.“
Heima njóti hann þess líka að elda fyrir þau Þórunni.
„Ég reyni alltaf að hlaupa og ná í pönnuna á undan henni. Mér finnst svo gaman að leggja fallega á borð, hafa kerti og elda einfaldan, góðan mat.“
En hver er uppáhaldsmaturin þinn?
„Ætli það sé ekki bara saltkjöt og baunir.“
En hvaða ráð á hann fyrir ungt fólk sem vill hefja rekstur?
„Þú verður að hafa trú á því sem þú ert að gera. Auðvitað áttu að hlusta á aðra sem vilja gefa þér góð ráð. Svo meturðu sjálfur hvað þér finnst rétt.“
Og fara ekki of geyst.
„Byrja smátt, taka þetta skref fyrir skref. Ekki byrja á toppnum.“
Sjálfur hafi hann aldrei séð fyrir sér hvert Skólamatur myndi ná.
„Þetta er framar vonum. Ég leysti bara hvern dag fyrir sig og geri í raun og veru enn.“
Hvað stendur þá upp úr eftir öll árin, áföllin og sigrana?
„Ég tek bara þakklætið.“
Og hann bætir við:
„Ekki gleyma að þakka fyrir það sem þú hefur.“
Viðtal Páls Ketilssonar við Axel Jónsson verður birt í heild á miðlum Víkurfrétta og í hlaðvarpi.





