Fréttir

Nýfjárfestingar Vegagerðarinnar: Lægsta hlutfall allra landshluta til Suðurnesja
Laugardagur 7. nóvember 2026 kl. 05:18

Nýfjárfestingar Vegagerðarinnar: Lægsta hlutfall allra landshluta til Suðurnesja

Nýtt minnisblað Vegagerðarinnar sýnir að á árunum 2015–2025 runnu aðeins 2.652 m.kr. til nýfjárfestinga í vegakerfinu á Suðurnesjum. Það jafngildir einungis 1,7% af heildarfjárfestingum á landsvísu og er lægsta hlutfall allra landshluta. Þetta kemur fram í samantekt Berglindar Kristinsdóttur, framkvæmdastjóra Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum.

„Suðurnes eru eitt helsta vaxtarsvæði landsins. Reykjanesbraut er lykilæð fyrir íbúa, atvinnulíf, ferðaþjónustu, Keflavíkurflugvöll og almannavarnir en þrátt fyrir það er hvorki gert ráð fyrir fjárveitingu né útboði vegna áframhaldandi tvöföldunar Reykjanesbrautar fyrr en eftir 2030. Þetta verður að breytast,“ segir Berglind í færslu sinni á Facebook.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100