Fréttir

Íbúum Suðurnesja fækkar
Hlutfallslega var fjölgunin mest í Grindavík, þar sem skráðum íbúum fjölgaði um 3,1 prósent. Þar voru 920 íbúar skráðir 1. nóvember, 28 fleiri en 1. desember í fyrra. Myndin er frá opnun bókasafns í Grindavík nú í haust. VF/hilmarbragi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 7. nóvember 2026 kl. 04:40

Íbúum Suðurnesja fækkar

Skráðum íbúum á Suðurnesjum fækkaði um 275 frá 1. desember 2025 til 1. nóvember 2026, samkvæmt tölum Þjóðskrár. Fækkunin nemur 0,9 prósentum. Íbúum fækkaði í Reykjanesbæ en fjölgaði í hinum þremur sveitarfélögum landshlutans.

Alls voru 31.591 íbúi skráður á Suðurnesjum 1. nóvember, samanborið við 31.866 hinn 1. desember í fyrra.

Mest breyting varð í Reykjanesbæ, þar sem skráðum íbúum fækkaði um 431, eða 1,7 prósent. Íbúar sveitarfélagsins voru 24.204 í byrjun nóvember en 24.635 við upphaf samanburðartímabilsins.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Í Suðurnesjabæ fjölgaði íbúum um 74, úr 4.383 í 4.457, sem jafngildir 1,7 prósenta fjölgun. Í Sveitarfélaginu Vogum fjölgaði um 54 íbúa, úr 1.956 í 2.010, eða um 2,8 prósent.

Hlutfallslega var fjölgunin mest í Grindavík, þar sem skráðum íbúum fjölgaði um 3,1 prósent. Þar voru 920 íbúar skráðir 1. nóvember, 28 fleiri en 1. desember í fyrra. Skráður íbúafjöldi í Grindavík er þó enn langt undir því sem áður var, en 1. desember 2023 voru þar skráðir 3.720 íbúar.

Þrátt fyrir fækkun á Suðurnesjum á síðustu ellefu mánuðum eru íbúar landshlutans fleiri en í upphafi samanburðar Þjóðskrár. Þeir voru 27.825 hinn 1. desember 2019 og hefur því fjölgað um 3.766 síðan þá.

Á landsvísu fækkaði íbúum í 23 af 61 sveitarfélagi á tímabilinu en íbúafjöldi jókst eða stóð í stað í 38 sveitarfélögum.

Tölurnar miðast við einstaklinga sem skráðir eru með búsetu hér á landi hjá Þjóðskrá.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100